Vantar þig æfingasvæði í Canvas?
Æfingasvæðið er gervinámskeið í Canvas. Þar getur kennari gert tilraunir, sett upp hluti, prófað ný verkfæri eða geymt hluti sem hann vill nota síðar í námskeiðum sínum. Einfalt er að flytja/afrita atriði frá æfingasvæðinu yfir á virkan námskeiðsvef. Æfingasvæðið er í raun venjulegur námskeiðsvefur án nemenda.
Ef þú átt ekki nú þegar æfingasvæði skaltu senda beiðni um það á hjalp@hi.is.

