Mat á hópmeðlimum (e. Group Member Evaluation)
Markmið
Þetta tól er oftast notað til að láta nemendur meta samskipti eða vinnuframlag hópfélaga ásamt því að meta eigið framlag (ef sjálfsmat er virkjað).
Tólið gefur þó kost á annars konar útfærslum. Sem dæmi að láta nemendur meta aðra hópa en sinn eiginn t.d. þegar nemendur meta kynningar hópa í kennslustund. Í því tilviki er hópur metinn sem heild. Ef sjálfsmat er virkjað í þess lags uppsetningu myndi nemandi meta eiginn hóp s.s. kynningu hópsins, út frá sömu forsendum og aðra (ekki einstaklinga innan hópsins).
Með þessu tóli skila nemendur engu verkefni eða skjali.
Mælt er með að láta nemendur fá skýr viðmið til að nota við matið. Í uppsetningu er boðið upp á að setja upp matsviðmið í töflu eða lista með eða án tölulegs kvarða.
Að meta vinnu hópfélaga ásamt því að meta eigið framlag er talið ýta undir gagnrýna hugsun. Matið veitir einnig kennara innsýn í samstarf nemenda.
Sjá nánari kynningu á mati á hópmeðlimum á vef FeedbackFruits.
Leiðbeiningar kennara
Kynntu þér tólið:
Group Member Evaluation: For Teachers.Stofnaðu verkefnið:
FeedbackFruits verkefni stofnað í Canvas.Opnaðu verkefnið þitt, farðu í Breyta og veldu stillingar og möguleika með hliðsjón af leiðbeiningum FeedbackFruits: Instructions: Setting Up.
Nánar:
- Detect outliers. – Quickly identify out-of-the-ordinary situations in teamwork assignments, like overconfident students, or group conflicts.
- Group Contribution Grading | Group Skill FactorPlugin: Group Member Evaluation.
- Group Member Evaluation | Group Contribution Grading | Group Contribution Factor.
Leiðbeiningar nemenda
Í leiðbeiningum FeedbackFruits fyrir nemendur getur kennari kynnt sér hvernig tólið virkar frá þeirra sjónarhorni. Einnig er upplagt að benda nemendum á þessar leiðbeiningar.
