FeedbackFruits verkefni stofnað í Canvas

- Leið 1: Einkunnir fara sjálfkrafa í einkunnabók námskeiðs, sem gefur kost á að gefa verkefninu vægi í lokaeinkunn.
- Leið 2: Einkunnir koma eingöngu fram í verkefninu sjálfu, þ.e. ef einkunnagjöf er notuð.
FeedbackFruits verkefni stofnað - Leið 1
Verkefnið eignast dálk í einkunnabók námskeiðs og hægt að gefa því vægi í lokaeinkunn.
- Farðu í Verkefni í leiðarstýringu námskeiðsins, vinstra megin.
- Smelltu á þrípunktinn í efra hægra horni (við hlið +Verkefni hnapps) og veldu FeedbackFruits.


- Veldu verkfærið sem þú vilt nota. Hér er hægt að velja um nokkrar leiðir m.a.:
- Safnið mitt: Búa til út frá FF sniðmáti sem þú hefur áður vistað.
- Fyrri verkþættir: Búa til út frá verkefni sem þú hefur áður stofnað.
- Byrja frá byrjun: Velja FF verkfæri og búa til verkefnið frá grunni.
- Gefðu verkefninu heiti og settu inn eitthvað í reitinn fyrir verkefnislýsingu.
Mælt er með að fylla einungis út á þessu stigi það sem er nauðsynlegt til að geta vistað verkefnið (ekki klára að velja allar stillingar). Það fer svolítið eftir verkfærinu sem valið er hvað þarf að fylla út til að mögulegt sé að vista.
- Vistaðu (ef ekki er mögulegt að vista á eftir að fylla út einhverjar nauðsynlegar upplýsingar).
FF verkefnið stofnast inn í/eða samtengt hefðbundnu Canvas verkefni. Þess vegna eignast það dálk í einkunnabókinni.
- Stilltu punktafjölda (hámarkseinkunn) Canvas megin, þ.e. með því að fara í Breyta stillingum verkefnis.
- Vistaðu.

- Kynntu þér leiðbeiningar FeedbackFruits fyrir það verkfæri FeedbackFruits sem þú ert að nota, farðu í Breyta/Edit (sbr. mynd fyrir ofan) og kláraðu að setja upp verkefnið s.s. setja inn verkefnislýsingu, velja dagsetningar og viðeigandi stillingar.
Athugaðu að mælt er með að nota ekki stillingar Canvas megin þ.e. í Canvas verkefninu til koma í veg fyrir árekstra á milli kerfanna.
- Vistaðu.
Athugið!
Þegar FeedbackFruits verkefni er stofnað með þessari leið hangir það við hefðbundið Canvas verkefni. Mælt er með að stilla allar tímasetningar inn í FeedbackFruits en sleppa tímasetningum í Canvas verkefninu.
Ef tímasetningar eru stilltar Canvas megin geta þær haft áhrif á hvernig FF verkefnið virkar. Dagsetning Canvas megin getur t.d. lokað fyrir aðgerðir sem nemendur eiga að gera. Dag- og tímasetningar í FF koma fram í námskeiðsdagatali.
FeedbackFruits verkefni stofnað - Leið 2
Verkefnið eignast tengil inn í einingu/viku og einkunnir fyrir það koma eingöngu fram í verkefninu sjálfu (ef einkunnir eru notaðar). Það kemur ekki fram undir verkefnum og eignast ekki dálk í einkunnabók.
- Smelltu á þrípunktinn í efra hægra horni (við hlið +Eining hnapps) eða á þrípunkt tiltekinnar einingar og veldu FeedbackFruits.

- Veldu verkfærið sem þú vilt nota, eða veldu í staðin „Copy from existing“ og notaðu FF template sem þú hefur áður stofnað. Einnig er hægt að afrita fyrra FF verkefni sem hefur verið búið til nýlega.
- Gefðu FF verkefninu heiti og skrifaðu eitthvað í verkefnislýsingu. Það fer eftir því hvaða verkfæri þú valdir hvaða upplýsingar er nauðsynlegt að skilgreina á þessu stigi. FF mun láta vita ef eitthvað vantar. Gott er að fylla hér út einungis það sem er nauðsynlegt til að geta vistað.
- Vistaðu (ef ekki er mögulegt að vista þarf að fylla út einhverjar fleiri upplýsingar).
- Smelltu á Bæta við atriði.
- Kynntu þér leiðbeiningar FeedbackFruits fyrir það verkfæri FeedbackFruits sem þú ert að nota, farðu í Edit og kláraðu að setja upp verkefnið s.s. setja inn verkefnislýsingu, velja dagsetningar og viðeigandi stillingar.
Athugaðu að mælt er með að nota ekki stillingar Canvas megin þ.e. í Canvas verkefninu til koma í veg fyrir árekstra á milli kerfanna.
- Vistaðu.




