Heim > Kennarar > Þátttaka og skil > FeedbackFruits verkfærin

FeedbackFruits verkfærin

Kennslufræðin leiðandi

Kjarninn í nálgun FeedbackFruits er að kennslufræðin komi fyrst og leiði tæknina áfram, ekki öfugt. Áhersla er lögð á kennsluaðferðir sem bæta námsárangur, þar sem tæknin þjónar sem tól til að styðja við kennslufræðileg markmið

Gagnrýnin hugsun

Markmið FeedbackFruits er að hlúa að umhverfi þar sem gagnrýnin hugsun fær að blómstra. Verkfærin eru hönnuð sérstaklega til að efla þessa nauðsynlegu færni.

Virkir nemendur

FeedbackFruits leggur áherslu á að skapa kraftmikla námsupplifun sem hvetur til virkrar þátttöku. Markmiðið er að kanna stöðugt nýjar leiðir til að efla þátttöku nemenda, ekki eingöngu í tengslum við námsefnið heldur einnig með samskiptum, samvinnu og samræðu við aðra nemendur og kennara.

Viska á upplýsingaöld

Á tímum óþrjótandi upplýsingaflæðis er mikilvægi gagnrýnnar hugsunar óumdeilt. Með því að skapa tól sem styðja við ígrundun og greinandi hugsun, er markmið FeedbackFruits að undirbúa nemendur ekki aðeins sem upplýsinganeytendur heldur til að skilja, gagnrýna og nota þekkingu sína á þýðingarmikinn hátt.

FeedbackFruits vill umbreyta menntun með því að setja nemandann í miðju námsupplifunar og efla menningu sem fóstrar virkt nám, gagnrýna hugsun og samvinnu.

Verkfærasafnið

Á vef FeedbackFruits er fjölbreyttur fróðleikur um ýmis mál tengd kennslu