Sjálfsmat á hæfni (e. Self-Assessment of Skill)
Markmið
Sjálfsmat felst í að nemandi gefur sjálfum sér eða eigin hópi endurgjöf og metur hæfni út frá viðmiðum sem kennari gefur. Sjálfsmatið hjálpar nemanda að gera sér grein fyrir eigin hæfni og hvort eða hvað þarf að bæta. Sjálfsmat hvetur nemanda til ígrundunar og ábyrgðar á eigin námi og getur aukið námsárangur.
Sjá nánari kynningu á tólum fyrir sjálfsmat á vef FeedbackFruits.
Leiðbeiningar kennara
- Kynntu þér tólið:
Self-Assessment of Skills: Overview. - Stofnaðu verkefnið:
FeedbackFruits verkefni stofnað í Canvas. - Opnaðu verkefnið aftur, farðu í Breyta og veldu stillingar og möguleika með hliðsjón af leiðbeiningum FeedbackFruits:
Self-Assessment of Skills: Instructions: Setting Up.
Leiðbeiningar nemenda
Í leiðbeiningum FeedbackFruits fyrir nemendur getur kennari kynnt sér hvernig tólið virkar frá þeirra sjónarhorni. Einnig er upplagt að benda nemendum á þessar leiðbeiningar.
