Gagnvirkt myndband (e. Interactive Video)

Markmið

Kennslumyndbönd eða upptökur eru mikilvæg gögn í kennslu nánast allra námskeiða. Áhorf eða hlustun krefst hins vegar ekki mikillar virkni af nemanda. Nemandinn er að mestu óvirkur á meðan horft er eða hlustað. Gagnvirknin felur í sér að láta spurningar eða umræðuþræði fylgja tímalínu myndbandsins og virkja með því nemendur til að eiga í samskiptum um efnið og takast á við að svara spurningum. Gagnvirknin gerir kennara mögulegt að nota vendikennslu þ.e.a.s. láta nemendur horfa á upptöku, svara spurningum og/eða taka þátt í umræðu heima en nota kennslustundina til að fara dýpra í efnið s.s. með umræðum. Kennarinn getur að auki leyft nemendum að skrá athugasemdir eða hefja umræður tengdar tímalínu myndbands og aukið sjálfræði þeirra í náminu enn frekar.

Sjá nánari kynningu á gagnvirku myndbandi á vef FeedbackFruits.

Leiðbeiningar kennara

  1. Byrjaðu á að stofna verkefnið, sjá nánar:
    FeedbackFruits verkefni stofnað í Canvas.
  2. Opnaðu verkefnið aftur, farðu í Breyta og veldu stillingar og möguleika með hliðsjón af leiðbeiningum FeedbackFruits:
    Interactive Video | Setting up.
  3. Að skoða virkni nemenda:
    Video: Active Assignment.

Leiðbeiningar nemenda

Í leiðbeiningum FeedbackFruits fyrir nemendur getur kennari kynnt sér hvernig tólið virkar frá þeirra sjónarhorni. Einnig er upplagt að benda nemendum á þessar leiðbeiningar.