Skilningsverkefni (e. Comprehension)

Markmið

Skilningsverkefni er t.d. hægt að nota:

til að efla virkan lestur og ýta undir bættan skilning á námsefni.
hvetja til heimanáms með því að láta verkefnið gilda sem hluta þátttökueinkunnar í námskeiði.
fyrir námsefni sem hefur reynst nemendum erfitt eða valdið ruglingi.
til að ýta undir gagnrýna hugsun um tiltekin málefni í námsefninu.
til að leyfa nemendum að uppgötva mismunandi sjónarhorn samnemenda og fá þjálfun í samskiptum um námsefnið.

Örlítið um virkni

Þessi gerð verkefnis er notuð fyrir efni sem nemendur eiga að lesa/hlusta/horfa á. Kennari deilir skrá með nemendum (Word skjal, pdf, myndbandi, mynd eða hljóðupptöku) og bætir í hana málefnum sem nemendur tjá sig um. Umræðuefni gæti t.d. falist í að útskýra tiltekna hugmynd og merkja við nokkur atriði í texta máli sínu til stuðnings. Ef námsefnið væri mynd gæti umræðuefni falist í að merkja við staði á myndinni og útskýra. Hægt er að velja um nafnleysi og skilgreina hvernig einkunn á að reiknast út.

Kennari getur fylgst með framvindu verkefnisins, þátttöku nemenda, sett athugasemdir við innlegg nemenda o.fl. Mögulegt er að hafa athugasemdir samnemenda sýnilegar og efla með því samvinnunám. Skilningsverkefni er einnig hægt að setja upp sem hópverkefni.

Leiðbeiningar kennara

  1. Byrjaðu á að stofna verkefnið, sjá nánar:
    FeedbackFruits verkefni stofnað í Canvas.
  2. Opnaðu verkefnið aftur, farðu í Breyta og veldu stillingar og möguleika með hliðsjón af leiðbeiningum FeedbackFruits:
    Comprehension | Setting up.
  3. Skoðaðu virkni nemenda:
    Comprehension | Teacher Perspective.

Leiðbeiningar nemenda

Í leiðbeiningum FeedbackFruits fyrir nemendur getur kennari kynnt sér hvernig tólið virkar frá þeirra sjónarhorni. Einnig er upplagt að benda nemendum á þessar leiðbeiningar.