Gagnvirk glærukynning (e. Interactive Presentation)

Markmið

Gagnvirk kynning er hönnuð til að efla þátttöku nemenda í kennslustund. Verkfærið gerir kennara kleift að bæta fjölvalsspurningum eða opnum spurningum inn á tiltekna staði í glærur. Nemendur svara spurningunum um leið og kennslan fer fram. Kennari getur fylgst með þátttöku nemenda í rauntíma, fylgst með svörum nemenda og sé hversu góðan skilning þeir hafa á efninu. Ef einkunnir nemenda fyrir spurningarnar eiga að hafa vægi í námskeiðseinkunn þarf að setja kynninguna upp sem verkefni en ef ekki er betra að setja kynninguna upp í einingu og velja ytra tæki.
Gagnvirk kynning er sérstaklega hentug þegar kennslan fer fram í gegnum netið og virkni nemenda er jafnvel enn mikilvægari.

Sjá nánari kynningu á gagnvirkri kynningu á vef FeedbackFruits.

Leiðbeiningar kennara

  1. Stofnaðu verkefnið:
    FeedbackFruits verkefni stofnað í Canvas.
  2. Opnaðu verkefnið aftur, farðu í Breyta og veldu stillingar og möguleika með hliðsjón af leiðbeiningum FeedbackFruits:
    Interactive Presentation | Setting up.
  3. Fylgstu með virkni nemenda:
    Interactive Presentation: For Teachers.

Leiðbeiningar nemenda

Í leiðbeiningum FeedbackFruits fyrir nemendur getur kennari kynnt sér hvernig tólið virkar frá þeirra sjónarhorni. Einnig er upplagt að benda nemendum á þessar leiðbeiningar.