Umræða um málefni (e. Discussion on Topic)

Markmið

Einn aðal kosturinn við umræður sem kennsluaðferð er að nemendur þjálfast í rökræðum og samskiptum við annað fólk.

Í umræðum læra nemendur hvert af öðru, takast á við að svara spurningum samnemenda og kennara, þjálfast í að útskýra mál sitt, nota tungutak fræðanna, tengja við hugtök og kenningar og við eigin reynslu og þekkingu.

Markmið umræðu þurfa að vera skýr. Hvað eiga nemendur að fá út úr umræðunni? Mikilvægt er einnig að gefa rúm fyrir samantekt í lok umræðu, annað hvort kennarans eða þar sem nemendur deila niðurstöðum sínum.

Hægt að nota mismundandi kennsluaðferðir í umræðu. Á vef Setbergs er að finna dæmi um nokkrar kennsluaðferðir sem gagnast í umræðum, s.s. einn-tveir-allir (think-pair-share) o.fl.

Sjá nánari kynningu á málefni til umræðu á vef FeedbackFruits.

Leiðbeiningar kennara

  1. Kynntu þér tólið:
    Discussion on Topic: Overview.
  2. Stofnaðu verkefnið:
    FeedbackFruits verkefni stofnað í Canvas.
  3. Opnaðu verkefnið aftur, farðu í Breyta og veldu stillingar og möguleika með hliðsjón af leiðbeiningum FeedbackFruits.
    Discussion on Topic | Setting up.
  4. Skoðaðu virkni nemenda:
    Peer Discussion: Active Assignment.

Leiðbeiningar nemenda

Í leiðbeiningum FeedbackFruits fyrir nemendur getur kennari kynnt sér hvernig tólið virkar frá þeirra sjónarhorni. Einnig er upplagt að benda nemendum á þessar leiðbeiningar.