Heim > Kennarar > Þátttaka og skil > FeedbackFruits verkfærin > Beiðni um endurgjöf á hæfni

Beiðni um endurgjöf á hæfni

Tilgangur

Verkfærið gefur nemendum kost á að óska eftir endurgjöf frá utanaðkomandi matsaðila á tiltekna hæfni eða færni. Það hentar til dæmis í starfsnámi, vinnutengdu námi, klínísku námi, vettvangsnámi, mentorsverkefnum og öðru samhengi þar sem hæfni nemenda er metin út frá athugun á framkvæmd, frekar en innsendu verkefni.

Endurgjöfin fylgir ramma sem kennari skilgreinir, en nemendur bera ábyrgð á að senda beiðnina og vinna með endurgjöfina sem þeir fá. Ólíkt Feedback Request on Work skila nemendur ekki inn verki; matsaðilar veita endurgjöf út frá því sem þeir hafa séð eða fylgst með í hæfni nemandans.

Matsaðili getur til dæmis verið leiðbeinandi á vinnustað, mentor, klínískur leiðbeinandi, utanaðkomandi matsaðili eða samstarfsaðili úr atvinnulífinu. Hann þarf ekki að hafa aðgang að Uglu, Canvas eða FeedbackFruits til að veita endurgjöf. Endurgjöfin skilar sér inn í FeedbackFruits verkefnið í Canvas.

Kennari

Kennari setur upp verkefnið, skilgreinir hæfniviðmið, matskvarða, einkunnaskala, leiðbeiningar fyrir matsaðila, skilafresti og aðrar viðeigandi stillingar.

Kennari getur einnig ákveðið hvort nemendur fái endurgjöf á öll viðmið eða hvort þeir megi velja hvaða hæfni eða færni þeir vilja fá endurgjöf á.

Nemandi

Nemandi býr til beiðni um endurgjöf, skráir hver á að veita endurgjöfina og sendir beiðnina til viðkomandi úr verkefninu. Ef kennari leyfir getur nemandi valið hvaða hæfni eða færni hann vill fá endurgjöf á.

Þetta gefur nemendum virkt hlutverk í að greina á hvaða sviðum þeir þurfa endurgjöf.

Matsaðili

Matsaðili fær tengil í tölvupósti og gefur einkunnir og/eða skrifar athugasemdir út frá þeim viðmiðum sem valin eru í verkefninu og sendir inn.

Leiðbeiningar kennara

  1. Stofnaðu verkefnið:
    FeedbackFruits verkefni stofnað í Canvas.
  2. Opnaðu verkefnið þitt, farðu í Breyta, settu inn dagsetingar og veldu aðra möguleika sem henta verkefninu með hliðsjón af leiðbeiningum FeedbackFruits:
    Feedback Request on Skills: For Teachers.

Leiðbeiningar matsaðila

Leiðbeiningar nemenda

Í leiðbeiningum FeedbackFruits fyrir nemendur getur kennari kynnt sér hvernig tólið virkar frá þeirra sjónarhorni. Einnig er upplagt að benda nemendum á þessar leiðbeiningar.