Sjálfvirk endurgjöf (e. Automated Feedback)
Markmið
Með sjálfvirkri endurgjöf er hægt að veita nemanda leiðsagnarmat í tengslum við akademísk skrif út frá matsviðmiðum sem kennari setur upp. Nemandi getur endurtekið skilin og fengið sjálfvirka endurgjöf í hvert skipti þar til lokaútgáfu verkefnisins er skilað.
Endurgjöfin felst í beinum leiðréttingum, innbyggðri endurgjöf, tillögum og hrósi. Sjálfvirk endurgjöf býður upp á tilbúin sniðmát, Research paper, Case Study, Thesis, Essay sem kennari getur notfært sér sem grunn eða notað óbreytt. Einnig er mögulegt að setja upp sitt eigið sniðmát frá grunni, tínt inn það þau matsviðmið sem henta s.s. viðmið um stafsetningu, málfræði, stíl tilvísana o.fl.
Sjálfvirka endurgjöf er hægt að bæta við jafningjamat (e. peer review) og endurgjöf fyrir verkefni (e. assignment review). Einnig er hægt að byrja á að stofna verkefnið sem sjálfvirka endurgjöf en bæta síðan inn í verkefnið jafningjamati eða endurgjöf fyrir verkefni.
Sjá nánari kynningu á sjálfvirkri endurgjöf á vef FeedbackFruits.
Leiðbeiningar kennara
- Kynntu þér tólið:
Automated Feedback: Overview. - Stofnaðu verkefnið:
FeedbackFruits verkefni stofnað í Canvas. - Opnaðu verkefnið aftur, farðu í Breyta og veldu stillingar og möguleika með hliðsjón af leiðbeiningum FeedbackFruits:
Instructions: Setting Up.
Submissions: Active Assignment.
Automated Feedback | Choosing the right criteria.
Leiðbeiningar nemenda
Í leiðbeiningum FeedbackFruits fyrir nemendur getur kennari kynnt sér hvernig tólið virkar frá þeirra sjónarhorni. Einnig er upplagt að benda nemendum á þessar leiðbeiningar.
- Automated Feedback: For Students.
- Automated Feedback | Choosing criteria as a student.
- Automated Feedback | Student Autonomy | Student Perspective.
