Umræðuverkefni (e. Discussion on Work)
Markmið
Umræður eru stór þáttur í að dýpka skilning nemenda á námsefni, ýta undir samskipti, samvinnu og gagnrýna hugsun.
Umræðuverkefni snýst um skil á verkefni og í kjölfarið umræðu um verkefni. Kennari velur fjölda verkefna sem hver nemandi á að taka þátt í að ræða t.d. að hver nemandi ræði verkefni tveggja samnemenda við eigendur verkefnanna. Umræðuverkefni býður einnig upp á að hafa opna umræðu eftir fyrri umræðuna. Í opinni umræðu fá nemendur aðgang að verkefnum allra nemenda, geta skoðað þau og tekið þátt í umræðum um þau. Kennari getur tekið þátt og stýrt umræðunni.
Hægt er að setja umræðuverkefni upp sem einstaklings eða hópverkefni og láta nemendur taka þátt í umræðu innan eigin hóps eða utan. Líkt og í öðrum FF verkefnum er hægt að brjóta upp einkunn í ólíka þætti eða sleppa einkunnagjöf.
Leiðbeiningar kennara
- Kynntu þér tólið:
Discussion on Work: Overview. - Stofnaðu verkefnið, sjá nánar:
FeedbackFruits verkefni stofnað í Canvas. - Opnaðu verkefnið aftur, farðu í Breyta og veldu stillingar og möguleika með hliðsjón af leiðbeiningum FeedbackFruits:
Discussion on Work: Setting up. - Skoðaðu virkni nemenda:
Peer Discussion: Active Assignment.
Leiðbeiningar nemenda
Í leiðbeiningum FeedbackFruits fyrir nemendur getur kennari kynnt sér hvernig tólið virkar frá þeirra sjónarhorni. Einnig er upplagt að benda nemendum á þessar leiðbeiningar.
