Beiðni um endurgjöf á verkefni
Verkfærið gefur nemanda kost á að óska eftir endurgjöf frá utanaðkomandi á eigið verk. Verkfærið hentar til dæmis í starfsnámi, vinnutengdu námi, verkefnavinnu, drögum að lokaverkefni eða skýrslu, ferilmöppum og öðrum verkefnum þar sem sjónarhorn utanaðkomandi aðila skiptir máli.
Endurgjöfin fylgir ramma sem kennari skilgreinir, en nemendur bera ábyrgð á að senda beiðnina og vinna með endurgjöfina sem þeir fá.
Matsaðili getur til dæmis verið leiðbeinandi á vinnustað, mentor, klínískur leiðbeinandi, utanaðkomandi matsaðili eða samstarfsaðili úr atvinnulífinu. Hann þarf ekki að hafa aðgang að Uglu, Canvas eða FeedbackFruits til að veita endurgjöf. Endurgjöfin skilar sér inn í FeedbackFruits verkefnið í Canvas.
Kennarinn setur upp verkefnið, skilgreinir, matsviðmið, matskvarða, einkunnaskala, leiðbeiningar og velur stillingar.
Nemandi skilar inn verkefni, skráir hver á að gefa endurgjöfina og sendir beiðnina til viðkomandi, úr verkefninu. Nemandi getur bætt við skilaboðum til matsaðila og, ef kennari leyfir, valið hvaða viðmið hann vill fá endurgjöf á.
Matsaðili fær tengil í tölvupósti, skoðar skil nemandans og gefur einkunnir og/eða skrifar athugasemdir út frá þeim viðmiðum sem valin eru í verkefninu.
Leiðbeiningar kennara
- Stofnaðu verkefnið:
FeedbackFruits verkefni stofnað í Canvas. - Opnaðu verkefnið aftur, farðu í Breyta og veldu stillingar og möguleika með hliðsjón af leiðbeiningum FeedbackFruits:
Feedback Request on Work: For Teachers.
Leiðbeiningar matsaðila
Leiðbeiningar nemenda
Í leiðbeiningum FeedbackFruits fyrir nemendur getur kennari kynnt sér hvernig tólið virkar frá þeirra sjónarhorni. Einnig er upplagt að benda nemendum á þessar leiðbeiningar.
