Endurgjöf fyrir verkefni (e. Assignment Review)
Markmið
Endurgjöf fyrir verkefni virkar eins og hefðbundin verkefnaskil þar sem nemandi skilar t.d. skrá eða myndbandi, en með þeirri auka virkni sem FeedbackFruits býður upp á. Endurgjöf er hægt að gefa út frá matskvarða (matskvörðum) og tengja athugasemdir við texta nemandans. Nemandi getur svarað einstökum athugasemdum kennarans og smellt á líka við tákn. Mögulegt er að setja athugasemdir í myndbönd, skjöl, myndir og jafnvel inn á vefsíður. Fjölbreyttir möguleikar eru í FF varðandi samsetningu einkunnar og heildareinkunn verkefnis er hægt að birta í einkunnabók námskeiðs.
Nánari kynning á endurgjöf fyrir verkefni á vef FeedbackFruits.
Leiðbeiningar kennara
- Kynntu þér tólið:
Assignment Review: Overview. - Stofnaðu verkefnið:
FeedbackFruits verkefni stofnað í Canvas. - Opnaðu verkefnið aftur, farðu í Breyta og veldu stillingar og möguleika með hliðsjón af leiðbeiningum FeedbackFruits:
Assignment Review: For Teachers.
Leiðbeiningar nemenda
Í leiðbeiningum FeedbackFruits fyrir nemendur getur kennari kynnt sér hvernig tólið virkar frá þeirra sjónarhorni. Einnig er upplagt að benda nemendum á þessar leiðbeiningar.
