Jafningjamat (e. Peer Review)

Markmið

Jafningjamat er hugsað sem hluti af námsferli nemanda en oftast ekki sem hluti af námsmati og lokaeinkunn. Tilgangur jafningjamats er að nemendur hjálpi hver öðrum að við að ná betri árangri frekar en að mat nemenda gildi til einkunnar. Nemandi ígrundar verk samnemanda út frá forsendum sem kennari gefur t.d. í matskvarða og fær innsýn í það hvernig hans eigið verk er metið af samnemendum. Með jafningjamati dýpkar skilningur nemenda á viðmiðum verkefnisins, þau sjá fleiri sjónarhorn og túlkanir á þeim og geta lært af því til að bæta eigið verkefni. Jafningjamat er góður undanfari að lokaskilum á verkefni sem kennari metur.

Mikilvægt er að útskýra vel fyrir nemendum út á hvað jafningjamatið gengur, hvað skuli meta og hvernig og ræða um viðmið varðandi samskipti, s.s. að nefna hvað þyki gott áður en nefnt er hvað mætti laga eða bæta. Enn fremur að útskýra muninn á endurgjöf og einkunnagjöf. Einkunnagjöf er til að meta/dæma verkefni út frá kvarða s.s. 0-10 og hefur yfirleitt vægi í lokaeinkunn. Markmiðið með endurgjöf er hins vegar að gefa nemanda tækifæri til að bæta frammistöðu sína.

Gátlisti vegna jafningjamats

Áður en jafningjamat er sett upp í FeedbackFruits eru nokkur atriði sem mikilvægt er að taka afstöðu til.

Leiðbeiningar kennara

  1. Kynntu þér tólið:
    Peer Review: Overview.
    Peer Review: For Teachers.
  2. Stofnaðu verkefnið:
    FeedbackFruits verkefni stofnað í Canvas.
  3. Opnaðu verkefnið þitt, farðu í Breyta, settu inn dagsetingar og veldu aðra möguleika sem henta verkefninu með hliðsjón af leiðbeiningum FeedbackFruits:
    Instructions: Setting Up.

Nánar:

Peer Review: How are Peers Assigned?

Leiðbeiningar nemenda

Í leiðbeiningum FeedbackFruits fyrir nemendur getur kennari kynnt sér hvernig tólið virkar frá þeirra sjónarhorni. Einnig er upplagt að benda nemendum á þessar leiðbeiningar.

Einstaklings- eða hópverkefni
Valmöguleikar í uppsetningu jafningjamats

Skil á verkefni
(students work)

Jafningjamat
(review)

Skýring á virkni

EinstaklingsEinstaklingsSérhver nemandi metur annan nemanda (einn, fleiri eða alla) innan og/eða utan síns hóps.
EinstaklingsInnan hópaSérhver nemandi metur eigin hópmeðlimi (einn, fleiri eða alla) – Hentar til að láta nemendur meta vinnuframlag eigin hópmeðlima.
EinstaklingsUtan eigin hópsSérhver nemandi metur annan nemanda (einn, fleiri eða alla) sem er ekki í þeirra hópi. 
Sem hópurEinstaklings

Sérhver nemandi metur aðra hópa en sinn eigin (hér er hópurinn metinn sem heild). Ef sjálfsmat er virkjað metur hann vinnu eigin hóps sem heildar.

Sem hópurSem hópurSérhver nemandi innan sama hóps metur annan hóp sem heild. Nemendurnir meta allir sama hópinn. ATH. nemendur meta ávallt sem einstaklingar ekki sem hópur. Ef sjálfsmat er virkjað metur hann vinnu eigin hóps sem heildar.