Gagnvirkt skjal (e. Interactive Document)
Markmið
Þessi gerð verkefnis er notuð fyrir skjal sem nemendur eiga að lesa. Kennari hleður upp skjalinu og getur bætt í það spurningum eða umræðuþráðum þar sem nemendur ræða efnið.
Gagnvirkt skjal er t.d. hægt að nota:
til að efla virkan lestur og ýta undir bættan skilning á námsefni.
hvetja til heimanáms með því að láta verkefnið gilda sem hluta þátttökueinkunnar í námskeiði.
fyrir námsefni sem hefur reynst nemendum erfitt eða valdið ruglingi.
til að ýta undir gagnrýna hugsun um tiltekin málefni í námsefninu.
til að leyfa nemendum að uppgötva mismunandi sjónarhorn samnemenda og fá þjálfun í samskiptum um námsefnið.
Leiðbeiningar kennara
- Byrjaðu á að stofna verkefnið, sjá nánar:
FeedbackFruits verkefni stofnað í Canvas. - Opnaðu verkefnið aftur, farðu í Breyta og veldu stillingar og möguleika með hliðsjón af leiðbeiningum FeedbackFruits:
Interactive Document | Setting up. - Skoðaðu virkni nemenda:
Document Active Assignment.
Leiðbeiningar nemenda
Í leiðbeiningum FeedbackFruits fyrir nemendur getur kennari kynnt sér hvernig tólið virkar frá þeirra sjónarhorni. Einnig er upplagt að benda nemendum á þessar leiðbeiningar.
