Ferilmöppur - Portfolios
Canvas „ePortfolios“ verður lagt niður 30. júní 2026. Nýja „Portfolio“ (sem hér er fjallað um) mun alfarið taka við gerð ferilmappa. Bæði kerfin eru aðgengileg undir reikningi í Canvas valmyndinni. Nánari upplýsingar má finna í bloggfærslunni Introducing Canvas Portfolio.
Um ferilmöppur
Ferilmöppur í Canvas gefa kennurum kost á að safna, skipuleggja og fara yfir gögn sem tengjast námi, færni eða vinnu. Tólið býður upp á tvær megingerðir: matsmöppur, sem kennari býr til og notar til að fylgjast með framvindu nemenda, og sýnishornamöppur, sem hver notandi getur búið til fyrir eigin verk og gögn.
Matsferilmöppu er hægt að tengja við eitt eða fleiri Canvas-námskeið og þá bætast nemendur í þeim námskeiðum sjálfkrafa við möppuna. Kennari getur sett inn heiti, leiðbeiningar, kafla og kröfur og bætt við gögnum á borð við verkefni, viðfangsefni, starfsreynslu og færniatriði. Matsferilmöppum fylgir mælaborð þar sem kennari getur fylgst með framvindu nemenda, séð í hvaða möppum vinna hefur ekki hafist, hvaða möppur eru í vinnslu, bíða yfirferðar eða er lokið. Kennari getur opnað stöðu einstakra nemenda og skoðað nánar.
Bæði nemendur og kennarar geta sett upp sínar eigin sýnishornamöppur. Þær eru sjálfgefið lokaðar en hægt að deila með hlekk.
