Einkunnabókin - Yfirlit og möguleikar

Í myndbandinu er farið yfir helstu möguleika einkunnabókarinnar s.s. að nota síur (filters) til að skoða tiltekna hluta einkunnabókar, gefa einkunn og hvernig verkefni er undanskilið hjá nemanda og á ekki að gilda í lokaeinkunn.

Að birta eða fela einkunnir

Einkunnir verkefnis birtar

  1. Farðu í einkunnabók, Einkunnir í valmynd námskeiðs.
  2. Finndu verkefnið og smelltu á þrípunktinn efst á dálkinum.
  3. Smelltu á Birta einkunnir og samþykktu í panelnum hægra megin.

    birta einkunnir

  1.  

Einkunnir faldar á meðan gefið er fyrir

Sjálfvalin stilling einkunnabókar er þannig að einkunnir verkefnis/prófs eru faldar þar til kennari birtir þær. Þetta er hægt að sannreyna með því að skoða stillingar einkunnabókar.

Eru einkunnir örugglega faldar?

    1. Farðu í einkunnabók, Einkunnir í valmynd námskeiðs.
    2. Smelltu á tannhjól í efra hægra horni.
    3. Veldu flipann Einkunnabirtingarstefnu.
    4. Þar á að vera merkt við Birta einkunnir handvirkt sem þýðir að einkunnir verkefnis eru faldar þar til kennari birtir þær handvirkt.

Sýnileiki lokaeinkunnar

Um lokaeinkunn

Lokaeinkunn námskeiðs er birt í einkunnabók sem hlutfall og námunduð í heilan og hálfan á skalanum 0-10. 

lokaeinkunn í heilum og hálfum

Að fela lokaeinkunn/heildareinkunnir hjá nemendum

Stundum getur hentað að hafa lokaeinkunn falda á meðan námskeið stendur yfir og birta einungis í lokin þegar allar einkunnir eru klárar.

  1. Farðu í stillingar neðst í valmynd námskeiðsins, vinstra megin.
  2. Neðst á síðunni skaltu merkja við fela heildartölur í einkunnasamantekt nemenda.
  3. Smelltu á uppfæra námskeiðsupplýsingar.

fela heildartölur

Aðgerðin felur bæði lokaeinkunn og heildareinkunn fyrir verkefnaflokka hjá nemendum.

 

Hnekking lokaeinkunnar

Til að breyta lokaeinkunn nemanda eins og hún reiknast í einkunnabók Canvas s.s. ef nemandi nær ekki lokaprófi eða einstökum einkunnaþáttum sem er krafist, þarf að nota hnekkingu lokaeinkunnar. Sjá nánar um hnekkingu í Frágangi einkunnabókar í hlutanum Hvað ef nemandi náði ekki öllum námsmatsþáttum?

Gefa þeim sem ekki hafa skilað 0

Gefa nemendum 0 fyrir verkefni þar sem vantar einkunn

Í útreikningum einkunnabókar eru tómir reitir ekki teknir með, því er nauðsynlegt að gefa 0 fyrir verkefni sem ekki er skilað, eigi það að draga niður einkunn nemanda. Ef hundsa á verkefnið í útreikningum fyrir tiltekinn nemanda skal gefa verkefninu „Undanþegið“ í stað einkunnar.

Hægt er að gefa öllum nemendum í einu 0 fyrir verkefni (eða öllum sem ekki hafa þegar fengið einkunn). Svona er farið að:

  1. Farðu í einkunnabók, einkunnir í valmynd námskeiðs.
  2. Smelltu á þrípunktinn efst í dálki verkefnisins og veljið Skilgreina sjálfgilda einkunn.

    skilgreina sjálfgilda einkunn

  3. Skráðu 0 í reitinn og smelltu á Skilgreina sjálfgilda einkunnNúll er sett hjá þeim nemendum sem ekki hafa fengið einkunn fyrir verkefnið.

    sjálfgild einkunn

Vanskilastefna stillt í upphafi námskeiðs

Með því að stilla einkunnabók í upphafi námskeiðs þannig að nemandi sem ekki skilar verkefni fái sjálfkrafa 0 er hægt að komast hjá því að gefa núllið handvirkt.

  1. Farðu í einkunnabók, einkunnir í valmynd námskeiðs.
  2. Smelltu á tannhjólið í efra hægra horni
    tannhjól
  3. Merktu við Skrá sjálfkrafa einkunn fyrir skil sem vantar og setjið 0 í reitinn fyrir neðan (sbr. mynd).
  4. Smelltu á Uppfæra.

     

    0 fyrir skil sem vantar

Litir og tákn einkunnabókar

Upplýsingar um tákn og liti í reitum einkunnabókar

Tákn einkunnabókar sem tilheyra Canvas: How do I use the icons and colors in the New Gradebook?

Tákn frá Turnitin

Þegar verkefni er tengt við ritskimunarforritið Turnitin birtist hlutfall samsvörunar í texta nemenda sem litir í einkunnabók. Önnur tákn geta líka birst s.s. upphrópunarmerki þegar skrá nemanda er ekki studd af Turnitin. Sjá nánar: Litir og tákn Turnitin.

Skilaboð frá einkunnabók

Hægt er að senda fyrirfram skilgreindum hópi nemenda skilaboð úr einkunnabókinni. Farið er í þrípunktinn efst í dálki prófs/verkefnis og valið Skilaboð til nemenda semHægt er að velja úr hópunum:

  • Hefur enn ekki skilað
  • Hefur ekki verið metið
  • Lægri einkunn en
  • Hærri einkunn en

Upp koma nöfn þeirra nemenda sem tilheyra hópnum t.d. þeirra sem hafa enn ekki skilað verkefni. Mögulegt er að fjarlægja einstök nöfn t.d. ef nemandi hefur fengið frest eða þarf ekki að skila verkefni.

Út- og innflutningur í einkunnabók

Einkunnabók Canvas býður upp á að flytja inn einkunnir með CSV skrá. Best er að byrja á að stofna verkefni í Canvas sem á að taka við einkunnum sem á að flytja inn, verkefnið eignast við það dálk í einkunnabókinni. Einkunnabókin er því næst flutt út. Einkunnabókin hleðst niður í tölvu sem CSV skrá. Skrána þarf að flytja inn í töflureikni (Excel, Libre Office), þar sem einkunnir eru skráðar eða gerðar þær breytingar sem þörf krefur. Skrána þarf að vista sem CSV skrá (velja CSV UTF-8 (Comma delimited)(*csv) við Save as type). Skráin er að lokum flutt inn í einkunnabókina.

Ekki skiptir máli þó Excel setji semíkommur í stað komma á milli dálka. Best er að vera með nýja útgáfu af Excel þar sem vandamál geta fylgt því að flytja inn í Canvas CSV skrár úr eldri útgáfum.

Í myndbandinu er sýnt:

  • Hvernig einkunnabókin er flutt út (hlaðið niður),
  • hvernig CSV skráin sem hleðst niður er flutt inn í Excel (ekki dugar að opna CSV skrána í Excel),
  • hvernig skráin er vistuð sem CSV skrá,
  • og hvernig CSV skráin er flutt inn í einkunnabókina.