Nafnlaus einkunnagjöf
Nafnlaus einkunnagjöf felur nöfn nemenda fyrir kennara eða matsaðilum á meðan verkefni er yfirfarið í SpeedGrader. Þetta getur verið gagnlegt þegar draga á úr ómeðvitaðri hlutdrægni við yfirferð.
Tvær leiðir eru mögulegar. Ef verkefnið á að vera nafnlaust fyrir alla matsaðila er best að virkja nafnleysi í uppsetningu verkefnisins. Ef kennari vill aðeins fela nöfn nemenda hjá sér við yfirferð er hægt að virkja nafnleysi beint í SpeedGrader.
Nafnleysi virkjað í uppsetningu verkefnis
Þessi leið gefur kost á að velja í uppsetningu verkefnis hvort einkunnagjöf á að vera nafnlaus. Nöfn nemenda munu þá ekki birtast í SpeedGrader.
Byrja þarf á að heimila nafnlausa einkunnagjöf í stillingum námskeiðsins.
- Smelltu á Stillingar neðst í leiðarstýringu námskeiðsins.
- Smelltu á Valkostir þáttar, flipi ofarlega á skjánum.

- Þar sem stendur Nafnlaus einkunnagjöf skaltu smella á rauða krossinn og velja að heimila. Eftir að þessi stilling hefur verið virkjuð fyrir námskeiðið mun bætast við valkostur í uppsetningu verkefna þar sem hægt er að merkja við nafnleysi.

- Opnaðu verkefnið sem á að hafa nafnlausa einkunnagjöf og smelltu á Breyta.
- Skrunaðu niður, merktu við Matsaðilar geta ekki séð nöfn nemenda og vistaðu.

Sjá nánar: How do I add an assignment that includes anonymous grading?
Nafnleysi virkjað í SpeedGrader
Þessi leið tengist notanda/einstökum kennara. Nöfn nemenda sjást ekki í SpeedGrader í neinum verkefnum kennarans á meðan stillingin er virk. Ef fleiri kennarar eru í námskeiði þarf hver og einn að velja stillinguna fyrir sig.
- Opnaðu verkefnið og farðu í SpeedGrader.
- Smelltu á tannhjólið í efra vinstra horni og á Valkosti.

- Merktu við Fela nöfn nemenda í SpeedGrader og vistaðu stillingarnar.

Sjá nánar: How do I hide student names in SpeedGrader?





