Heim > Kennarar > Einkunnir og endurgjöf > Nafnlausar athugasemdir kennara

Nafnlausar athugasemdir kennara

Nafnlausar athugasemdir kennara fela nafn kennara fyrir nemendum í athugasemdum sem eru settar beint inn í skil nemenda í skjalaskoðara SpeedGrader. Þetta getur hentað þegar fleiri en einn kennari eða matsaðili fer yfir verkefni og ekki á að koma fram hver skrifaði hvaða athugasemd. Athugið að almennar athugasemdir í hliðarstiku SpeedGrader verða ekki nafnlausar.

Best er að virkja stillinguna í verkefninu áður en skil nemenda hefjast. Ef athugasemdir eru settar inn áður en stillingin er virkjuð í verkefninu verða þær undir nafni, ekki er hægt að fela athugasemdir eftir á.

Nafnlausar athugasemdir virkjaðar í námskeiði

Byrja þarf á að virkja nafnlausar athugasemdir í stillingum námskeiðs.

  1. Smelltu á stillingar neðst í valmynd námskeiðsins.
  2. Veldu flipann valkosti þátta, ofarlega á skjánum.
    valkostir þáttar
  3. Skrollaðu niður og finndu stillinguna nafnlausar athugasemdir kennara.
  4. Smelltu á rauða krossinn hægra megin við og veldu að heimila, ekki þarf að vista. Eftir að stillingin hefur verið virkjuð mun valkosturinn koma fram í uppsetningu verkefna.

Nafnlausar athugasemdir virkjaðar í verkefni

  1. Opnaðu verkefnið og smelltu á breyta.
  2. Finndu stillinguna nafnlausar athugasemdir kennara og merktu við hana.
    nafnlausar-athugasemdir-kennara í verkefni
  3. Vistaðu verkefnið.

Eftir þetta birtist nafn kennara ekki með athugasemdum í skjali nemanda, þegar nemandi skoðar yfirfarin skil.