Heim > Kennarar > Einkunnir og endurgjöf > Stýrð einkunnagjöf

Stýrð einkunnagjöf í verkefni

Stýrð einkunnagjöf gerir ráð fyrir að fleiri en einn kennari gefi einkunn. Sá kennari sem ákvarðar lokaeinkunn verkefnis getur þá samþykkt einkunn annars kennara eða breytt einkunninni. Hámark tíu kennarar geta gefið verkefni einkunn.

Í Canvas verkefni er hægt að nota stýrða einkunnagjöf.

Byrja þarf á að heimila stýrða einkunnagjöf í stillingum námskeiðs. Eftir það kemur möguleikinn fram í stillingum verkefnis.

  1. Smelltu á Stillingar neðst í leiðarstýringu námskeiðsins.
  2. Smelltu á Valkostir þáttar flipann ofarlega á skjánum
  3. Skrunaðu niður og finndu Stýrð einkunnagjöf smelltu á rauða krossinn og veldu að heimila. Eftir að þessi stilling hefur verið virkjuð fyrir námskeið, bætist við valkostur í uppsetningu verkefna þar sem mögulegt er að nota stýrða einkunnagjöf.
    Myndin fyrir neðan sýnir valmöguleika í uppsetningu verkefnis eftir að stýrð einkunnagjöf hefur verið virkjuð.
    stýrð einkunnagjöf

Sjá nánar:
How do I add a moderated assignment to be graded by multiple reviewers?