Frágangur einkunnabókar og lokaeinkunn
Til að lokaeinkunn reiknist rétt og að mögulegt sé að flytja einkunnir úr Canvas í Uglu er nauðsynlegt að rétt sé gengið frá einkunnabókinni. Tryggja þarf m.a. að í einkunnabókinni séu engir auðir reitir sem gilda til einkunnar og að allar einkunnir séu birtar.
1. Stilla verkefni sem gilda ekki til lokaeinkunnar
Ef verkefni á ekki að gilda til lokaeinkunnar er nauðsynlegt að merkja við það í stillingum verkefnis (uppsetning).

2. Skrá einkunnina 0 fyrir vanskilaverkefni
Ef nemandi átti að skila verkefni en gerði það ekki og á að fá 0 fyrir verkefnið þarf að skrá það í einkunnabókina. Þetta er hægt að gera einfaldlega með því að skrá 0 í einkunnareit nemanda fyrir verkefni.
Ef um marga nemendur er að ræða getur verið fljótlegra að nota aðgerðina Skilgreina sjálfgilda einkunn. Farið er í þrípunktinn efst í dálki verkefnis (sbr. mynd), skilgreina sjálfgilda einkunn, skráð 0. Núllið fer þá á alla nemendur sem ekki hafa fengið einkunn fyrir verkefnið.


Einnig er hægt að stilla vanskilastefnu einkunnabókar þannig að þau sem ekki skila fái sjálfkrafa 0 en þetta þarf að gera í upphafi námskeiðs, áður en skil hefjast. Smellt er á tannhjólið lengst til hægri og einkunnahlutfallið fyrir vanskil stillt í 0%. Sjá nánar í myndskeiði fyrir neðan.
3. Skrá „undanþegið“ ef sleppa mátti verkefni
Ef skil á verkefni voru valkvæð og nemandi sleppti því að skila þarf að merkja verkefnið sem undanþegið. Sjá nánar í myndskeiðinu fyrir neðan.
Ef verkefni er merkt sem undanþegið uppreiknast vægi annarra verkefna sem því nemur.
4. Allar einkunnir þurfa að vera birtar nemendum
Ekki er mögulegt að flytja lokaeinkunnir úr Canvas í Uglu án þess að búið sé að birta einkunnir fyrir öll verkefni og próf í einkunnabókinni. Ef sjá má táknið yfirstrikað auga við verkefni eru einkunnir þess óbirtar.
- Smelltu á þrípunktinn efst í dálki verkefnis og á Birta einkunnir. Panel opnast hægra megin á skjánum.
- Staðfestu að birta einkunnir með því að velja Allir og smelltu á Birta.

Þrípunktur birtist þegar músarbendli er haldið yfir verkefni efst í dálkinum.
Nemandi náði ekki öllum námsmatsþáttum
Stundum eru settar kröfur í námskeiði um að nemandi verði að ná lágmarkseinkunn í tilteknum námsmatsþáttum eða jafnvel í öllum matsþáttum. Þá getur sú staða komið upp að lokaeinkunn/vegið meðaltal nær lágmarkseinkunn í námskeiði, en nemandi telst þó ekki hafa náð námskeiðinu. Þetta getur skapað misskilning hjá nemendum.
Til að birta nemanda raunverulega lokaeinkunn í Canvas, þarf í þessum tilvikum, að nota hnekkingu lokaeinkunnar. Byrja þarf að að heimila hnekkingu í stillingum námskeiðs og einkunnabók.
1. Hnekking lokaeinkunnar heimiluð
- Farðu í Stillingar neðst í leiðarstýringu námskeiðs.
- Veldu flipann Valkostir þáttar.
- Finndu Hnekkingu lokaeinkunnar og veldu að Heimila.

- Í einkunnabókinni þarf að staðfesta stillinguna með því að fara í tannhjólið í efra hægra horni
, þar í flipann Ítarlegra, merkja við Leyfir hnekkingu lokaeinkunnar og smella á virkja stillingar. Dálkurinn hnekkja bætist þá aftan við dálkinn fyrir lokaeinkunn.
2. Hnekking á lokaeinkunn skráð
Hnekkingu lokaeinkunnar þarf að skrá á sérstakan hátt og áríðandi að rétt sé farið að. Vegna tilvika sem hafa komið upp þar sem nemanda var birt röng lokaeinkunn, önnur en sú sem kennari skráði, er þetta ítrekað hér. Skráning er eftirfarandi:
Áríðandi!
- Skráðu hnekkingareinkunn sem hlutfall s.s. 43 fyrir 43%. Einkunnabókin umbreytir í einkunn á 0-10 skalanum og námundar í heilan og hálfan.
- Undantekning frá þessu er ef gefa þarf nemanda 10% eða lægra í einkunn, þá er nauðsynlegt að slá inn hnekkingareinkunnina í samræmi við einkunnaskalann 0-10 sem sagt: 0 0,5 eða 1.
- Skráðu hnekkingareinkunn eingöngu hjá þeim nemendum sem þarf að breyta einkunn hjá.
Dæmi til staðfestingar
Dæmi 1: Ef slegin er inn talan 10 í hnekkingu umbreytist hún ekki í 1 eins og búast mætti við, í samræmi við einkunnaskalann. Nemandi fær þá 10 í einkunn, 97,5%. Canvas sækir neðstu mörk fyrir 10.
Dæmi 2: Ef talan 4 er slegin inn í hnekkingu fær nemandinn ekki 40% heldur 37,5% þar sem Canvas sækir neðstu mörk einkunnaskalans fyrir einkunnina fjóra. (4 í einkunnaskala getur gefið hlutfall á bilinu 37,5% til < 42,5%).
Námundun lokaeinkunnar - Skoða einkunnaskalann
Þetta er einkunnaskalinn sem liggur til grundvallar við námundun lokaeinkunnar.

Í myndbandinu er hnekking lokaeinkunnar útskýrð og sýnt hvernig farið er að.


