Flutningur lokaeinkunna í Uglu
1. Lokaeinkunnir fluttar úr Canvas í Uglu
- eða skráðar handvirkt í Uglu
- Skráðu þig inn á https://ugla.hi.is og smelltu á Uglan mín í valmyndinni vinstra megin.

- Smelltu á Námskeiðin mín.

- Finndu námskeiðið sem um ræðir og smelltu á táknið Skrá lokaeinkunnir hægra megin við.

- Þrjár leiðir eru í boði við að skrá lokaeinkunnir. Veldu þá leið sem hentar. (*)
- að lesa inn einkunnir úr Excel skjali
- að sækja lokaeinkunnir í Canvas (*)
- að velja einkunn fyrir hvern nemanda handvirkt

Eftir að einkunnir hafa verið fluttar inn eða valdar handvirkt vistast þær sjálfvirkt í biðtöflu.
* Í tilvikum þar sem námskeið hafa verið sameinuð og samkennd í Canvas er einungis mögulegt að flytja einkunnir úr Canvas í Uglu í ráðandi námskeið, þ.e. námskeiðið sem valið var sem ráðandi við sameininguna. Til að skrá einkunnir í víkjandi námskeið þarf að opna skráningu lokaeinkunna í því námskeiði í Uglu og handvelja lokaeinkunnir.
* Ef valin er leiðin „Sækja úr Canvas“ þarf að tryggja frágangur Canvas einkunnabókar sé réttur. Að öðrum kosti kemur mögulega upp villa í Uglu þegar reynt er að flytja inn lokaeinkunnir. Sjá nánar um frágang einkunnabókar.
2. Yfirferð einkunna
Farið er yfir einkunnir og lagfært ef þarf með því að velja aðra einkunn eða annan möguleika við nafn nemanda t.d. Staðið án einkunnar, Fall án einkunnar eða Fjarverandi. Sjá nánar reglur um fjóra valmöguleika við skráningu lokaeinkunnar í Uglu.
3. Birting einkunna í nemendaskrárkerfinu
Eftir að kennari hefur yfirfarið einkunnir í biðtöflunni er nauðsynlegt að birta einkunnir.

Ef nauðsynlegt er að breyta einkunn nemanda eftir að hún hefur verið birt í nemendakerfi Uglu þarf kennari að senda beiðni um breytingu til sinnar kennslu- eða deildarskrifstofu fræðasviðs.
„Sækja úr Canvas“ er ekki sýnilegt í Uglu
Ef aðgerðin að sækja lokaeinkunnirnar úr Canvas kemur ekki fram í Uglu er það vegna þess að námskeiðið er stillt á að einkunnir skuli birtar undir prófnúmeri. Nauðsynlegt er að breyta þeirri stillingu til að hægt sé sækja lokaeinkunnir úr Canvas. Það er gert með því að opna skráningu námskeiðsins í Uglu og taka merkingu úr við að nota skuli fast Uglu-prófnúmer (á ekki við í Inspera). Sbr. skjáskot fyrir neðan.





