Heim > Kennarar > Einkunnir og endurgjöf > Frágangur einkunnabókar og lokaeinkunn > Prófnúmerum breytt í nafn í Uglu
Prófnúmerum breytt í nafn í Uglu
Við skráningu lokaeinkunnar í Uglu koma fram, eftir atvikum, nöfn nemenda og kennitölur eða prófnúmer. Til að fá fram nöfn í stað prófnúmera þarf að gera eftirfarandi:
- Opnaðu Námskeiðin mín á forsíðu Uglu eða með því að fara fyrst í Uglan mín vinstra megin.
- Smelltu á heiti námskeiðsins sem um ræðir.
- Farðu í Stillingar, hægra megin undir aðgerðum kennara (sbr. skjáskot fyrir neðan).

- Skrunaðu niður að Verkefnaskilakerfi: Nota nöfn/kennitölur eða prófnúmer (sbr. skjáskot fyrir neðan) og veldu Eftir kennitölu og nafni í listanum.

- Vistaðu breytingar neðst á síðunni.


