Heim > Kennarar > Einkunnir og endurgjöf > Frágangur einkunnabókar og lokaeinkunn > Um fjóra valmöguleika við skráningu lokaeinkunnar í Uglu

Um fjóra valmöguleika við skráningu lokaeinkunnar í Uglu

Þegar kennari gengur frá lokaeinkunn í Uglu birtist fellilisti með fjórum valmöguleikum:

  1. Einkunnaskali frá 0,0-10
  2. Staðið án einkunnar
  3. Fall án einkunnar
  4. Fjarverandi

Sjá útskýringar á hverjum möguleika fyrir neðan.

1. Einkunnaskali frá 0,0-10

  1. Þegar að nemandi stenst námskeið með lágmarkseinkunn (5,0 eða 6,0) er Ugla forrituð til að setja stöðuna Staðið í meðaleinkunn.
  2. Þegar nemandi hefur ekki staðist námskeið (einkunn 4,5 eða lægri) er Ugla forrituð til að setja stöðuna Fall með einkunn.
  3. Ef nemandi skilar hluta af námsmati sem byggir á 100% verkefnavinnu eða stenst ekki matið, þrátt fyrir að skila öllum verkefnum, skal gefa einkunn.
  4. Einnig skal gefa einkunn ef nemandi stenst ekki lokapróf og gerð er krafa um lágmarkseinkunn (5,0 eða 6,0) í lokaprófinu, áður en aðrir námsþættir eru reiknaðir inn í lokaeinkunn. Þá skal einungis skrá prófseinkunn.

2. Staðið án einkunnar

Ef einkunn fyrir námsmat er staðið/fallið og nemandi stenst námskeiðið skal skrá Staðið án einkunnar.

3. Fall án einkunnar

Ef einkunn fyrir námsmat er staðið/fallið og nemandi hefur ekki staðist námskeiðið skal gefa Fall án einkunnar. Í undantekningatilfellum má skrá Fall án einkunnar þegar nemandi hefur staðist lokapróf og kennari heimilar síðbúin skil á verkefni.

4. Fjarverandi

  1. Ef nemandi mætir ekki til lokaprófs skal velja Fjarverandi. Nemandi sem ekki mætir til prófs (og skilar ekki vottorði) er fallinn í námskeiði, skv. reglum HÍ. Nemandinn getur þá ekki skráð sig sjálfur í Uglu í endurtökupróf heldur þarf að skrá sig á ný í námskeiðið næst þegar það er haldið.
  2. Nemandi sem er skráður í námskeið en skilar engum verkefnum, né prófum skal skráður fjarverandi.