Heim > Kennarar > Einkunnir og endurgjöf > Frágangur einkunnabókar og lokaeinkunn > Gátlisti vegna frágangs einkunnabókar
Gátlisti vegna frágangs einkunnabókar
Eftirfarandi atriði þarf að kanna:
Í verkefnum í valmynd námskeiðs
- Öll verkefni sem einkunn er gefin fyrir eru með punkta. Punktar þurfa einnig að vera á verkefnum þar sem gefið er lokið/ólokið, eigi þau að reiknast inn í lokaeinkunn.
- Verkefnahópar hafa verið settir upp og verkefnum raðað í þá.
- Vægi hefur verið skilgreint fyrir verkefnahópana. Vægið er rétt og samkvæmt upplýsingum í kennsluáætlun.
- Ef fleiri en eitt verkefni er í sama verkefnahópi þurfa þau öll að hafa sama punktafjölda til að gilda jafnt.
- Í verkefnum sem hafa ekki vægi í lokaeinkunn hefur verið merkt við „Ekki reikna þetta verkefni með í lokaeinunn“, í uppsetningu verkefnisins og/eða verkefnin hafa verið sett í verkefnahóp sem hefur 0% vægi í lokaeinkunn.
- Tómum verkefnahópum hefur verið eytt.
Í einkunnabókinni
- Einkunnir eru í samræmi við punktafjölda verkefna. Punktafjöldi verkefna sést í einkunnabók efst í dálki verkefnis, t.d. „Af 10“, þá er punktafjöldi og hámarkseinkunn 10. Þar á ekki að standa „Af 0“. Ef punktafjöldi er sem dæmi 15 „Af 15“ eiga einkunnir að vera á skalanum 0-15.
- Í öllum einkunnareitum er einkunn, 0 eða „Undanþegið“ (lokið/ólokið er einkunn). Bandstrik er hvergi í einkunnareit:
Undantekning frá þessu er:
Einkunnareitir verkefna sem eiga ekki að reiknast með í lokaeinkunn. Í uppsetningu þeirra verkefna er merkt við „Ekki reikna þetta verkefni með í lokaeinunn“ eða þau þau hafa verið sett í verkefnahóp sem hefur 0% vægi. Í einkunnareitum þessara verkefna má vera bandstrik. - Ef regla um að sleppa lægstu einkunn er á verkefnahóp þarf að gefa 0 fyrir þau verkefni sem nemendur skiluðu ekki, að öðrum kosti reiknast einkunn verkefnahóps og lokaeinkunn ekki rétt.
- Ef nemandi hætti í námskeiði en nafn hans er enn sýnilegt í Canvas skal gefa 0 en eftir að lokaeinkunnir hafa verið fluttar í Uglu breyta einkunninni í Fjarverandi. Það sama á við ef nemandi mætti ekki í lokapróf.
- Einkunnir allra verkefna hafa verið birtar nemendum í Canvas.
Ef allt ofangreint er í lagi eru allar líkur á að lokaeinkunn nemenda sé rétt og vel gangi að flytja einkunnirnar í Uglu. Til að taka af allan vafa um réttan útreikning er mælt með að kennari reikni út nokkrar stikkprufur.
