Uppsetning verkefnis (skilahólf)
Verkefni stofnað
1. Heiti verkefnis og verkefnislýsing*
2. Punktar (hámarkseinkunn)*
3. Tegund skila*
3.1 Aðrar tegundir skila
4. Fjöldi leyfilegra skilatilrauna
5. Turnitin ritskimun
6. Hópverkefni
7. Jafningjamat
8. Stýrð einkunnagjöf
9. Nafnlaus einkunnagjöf
10. Nafnlausar athugasemdir kennara
11. Tímastillingar*
12. Gefa nemanda lengri skilafrest
13. Verkefni fyrir tiltekna nemendur
14. Vista og birta nemendum*
Annað sem tengist
Láta verkefnið koma fram í einingu
Sjá nemendur verkefnið?
Vægi verkefnis stillt
Að búa til verkefni – Hvaða stillingar þarf að velja?
Þau fimm atriði sem nauðsynleg er að stilla eru stjörnumerkt hér fyrir neðan.
Ávallt er þó gott að renna yfir atriðin þar sem Canvas velur sjálfvirkt þær stilllingar sem nýverið voru notaðar t.d. gæti stilling fyrir hópverkefni verið virkjuð ef kennari stofnaði síðast hópverkefni.
Verkefni stofnað
- Farðu í Verkefni í valmynd námskeiðsins vinstra megin.
- Smelltu á + Verkefni, bláa hnappinn í efra hægra horni. Uppsetningarform verkefnis opnast.


Verkefni er einnig hægt að stofna með því að nota plústáknið í einingu (viku) og velja verkefni í listanum.
1. Heiti verkefnis og verkefnislýsing*
- Gefðu verkefninu lýsandi heiti. Notaðu sama heiti og kemur fram í kennsluáætlun.
- Settu verkefnislýsinguna í ritilinn fyrir neðan.
Læra meira um möguleika ritilsins
2. Punktar (hámarkseinkunn)*

- Punktar verkefnis standa fyrir hámarkseinkunn verkefnis (ekki vægi). Ef gefa á einkunn á skalanum 0-10 þarf punktafjöldi að vera 10. Áríðandi er að skrá punkta ef verkefnið á að hafa vægi í lokaeinkunn. Verkefni sem á að gefa lokið ólokið fyrir þurfa einnig punkta.
- Veldu þann verkefnahóp sem verkefnið tilheyrir. Ef verkefnahópar hafa ekki verið stofnaðir er í lagi að gera það síðar, um leið og vægið er sett upp.
- Sýna einkunn sem punkta merkir að einkunn verður birt á skalanum 0-10 (þ.e. ef verkefnið hefur 10 punkta). Mögulegt er að birta einkunn sem hlutfall eða lokið ólokið (lokið stendur þá fyrir hámarkseinkunn en ólokið fyrir 0 í útreikningi einkunnabókar).
- Ef verkefnið á ekki að reiknast með í lokaeinkunn þarf að merkja við hér.
3. Tegund skila*

- Veldu Á netinu í listanum efst og merktu við Upphlaðnar skrár. Þetta gildir um skil á hvers konar skrám s.s. docx, pdf, mp4. Þessi stilling er einnig valin þegar nemendur eiga skila myndbandi úr Canvas Studio.
Merktu eingöngu við það sem við á og kemur fram í lýsingu á verkefninu um form skila. Að merkja við of marga kosti getur virkað ruglandi á nemendur og takmarkar einnig möguleika kennara varðandi form endurgjafar.
Sjá nánar um aðrar tegundir skila fyrir neðan.
3.1 Aðrar tegundir skila
Valmöguleikinn Á netinu býður einnig upp á eftirfarandi:
- Textafærsla – Þegar nemandi skilar verkefninu kemur Canvas ritilinn upp og nemandinn getur notað alla þá möguleika sem ritillinn bíður upp á. Athugaðu að kennari getur ekki skrifað endurgjöf inn í skil nemanda þegar þessi leið er notuð.
- Slóð vefsíðu – Nemandi skilar slóð á vefsíðu.
- Upptökur – Nemandi tekur upp myndband (eða eingöngu hljóð) inn í verkefnaskilunum, eða hleður upp myndbandi úr tölvu (möguleikinn hentar ekki ef nemendur eiga að nota Canvas Studio).
- Athugasemdir nemanda – Kennari hleður upp skjali sem nemendur setja athugasemdir inn í. Hver nemandi sér einungis eigin athugasemdir og athugasemdir kennarans.
- Takmarka tegundir skráa fyrir upphleðslu – Ef upphlaðnar skrár er valið er mögulegt að takmarka hér tegundir skráargerða sem nemendur geta skilað s.s. DOCX, PDF eða annað.
Tegund skila: Engin skil – Hentar þegar nemendur eiga ekki að skila verkefninu í Canvas s.s. vegna tilraunar í kennslustund eða nemendakynninga sem gefa á einkunn eða endurgjöf fyrir.
Tegund skila: Á blaði – Hentar þegar nemendur mæta í kennslustofu, skila skriflegu verkefni eða ritgerð, eða taka skriflegt próf á staðnum.
Tegund skila: Ytra tæki – Þegar ytra tæki er valið kemur upp listi verkfæra sem eru tengd við Canvas. Með því að nota annað verkfæri inn í Canvas verkefni getur kennari bætt nýrri virkni við verkefnið.
4. Fjöldi leyfilegra skilatilrauna
Sjálfvalda stillingin Ótakmarkað (oftast notuð) merkir að nemandi getur skilað verkefninu eins oft og hún/hann vill þar til tímastillingar verkefnisins loka fyrir möguleg skil. Nemandi og kennari hafa aðgang að fyrri skilatilraunum ásamt endurgjöf fyrir hverja og eina.
Stillingin Takmarkað gefur kost á að tilgreina fjölda leyfilegra skilatilrauna.

5. Turnitin ritskimun
Með Turnitin ritskimun er hægt að skoða samsvörun við annan texta í skilum nemenda.
Nauðsynlegt er að velja við Tegund skila, Upphlaðnar skrár til að möguleikinn Skoðun á ritstuldi verði aðgengilegur.
Stillingar vegna Turnitin:
- Veldu Turnitin við Skoðun á ritstuld. Stillingar vegna Turnitin opnast.
Stillingar sem oftast hentar að nota þegar nemendur skila texta á íslensku:
- Compare submission against – Merkja við alla möguleika, til að bera texta saman við öll möguleg gögn.
- Similarity Report: Möguleikarnir gagnast ekki vel fyrir íslenskan texta en í exclude small sources er þó hægt að útiloka samanburð við smærri textabrot t.d. 16-20 orð.
- Merktu við Save as default settings til að fá upp sömu stillingar næst þegar þú notar Turnitin, ef það hentar.
- Sýna nemendum skýrslu – Tafarlaust er oftast notað en fer eftir aðstæðum hverju sinni.
6. Hópverkefni
Með því að merkja við Þetta er hópverkefni og velja hópasett gerirðu verkefnið að hópverkefni. Þegar nemandi hóps skilar koma skilin fram hjá hverjum nemanda sama hóps. Einkunn og endurgjöf sem gefin er einum meðlimi hóps kemur fram hjá öllum nemendum sama hóps.
ÁRÍÐANDI:
Í hópverkefnum er áríðandi að allir nemendur séu settir í hóp, einnig nemendur sem mega skila einir, ef einhverjir eru og að samsetningu hóps/hópa sé ekki breytt eftir að skil hefjast.
Kynntu þér vel Unnið með hópa í námskeiði og hvernig má fyrirbyggja vandamál varðandi hópa í Canvas.
7. Jafningjamat
Með því að virkja jafningjamat gefurðu nemendum tækifæri til að skoða verkefni annarra og gefa samnemendum endurgjöf. Kennari getur valið um að deila út jafningjamatinu handvirkt eða láta Canvas deila því út af handahófi. Dæmi: Láta hvern nemanda meta verkefni þriggja samnemenda. Gott er að tengja matskvarða við verkefnið til að gefa nemendum viðmið við matið. Nemendur geta ekki gefið einkunn í jafningjamati, eingöngu skrifað umsögn og/eða merkt við í matskvarða. Eingöngu kennari getur gefið einkunn fyrir verkefnið.
Sjá nánar: Jafningjamat – uppsetning og yfirferð
Sjá einnig um jafningjamat með FeedbackFruits, sem hentar betur þegar jafningjamatið á að vera í hópum.

8. Stýrð einkunnagjöf
Stýrð einkunnagjöf gerir ráð fyrir að fleiri en einn kennari gefi einkunn. Sá kennari sem ákvarðar lokaeinkunn verkefnis getur þá samþykkt einkunn annars kennara eða breytt einkunninni. Hámark tíu kennarar geta gefið verkefni einkunn. Þennan kost þarf að virkja í stillingum námskeiðs til að hann sé aðgengilegur.
- Smelltu á Stillingar neðst í leiðarstýringu námskeiðsins.
- Smelltu á Valkostir þáttar flipann ofarlega á skjánum.

- Skrunaðu niður og finndu Stýrð einkunnagjöf smelltu á rauða krossinn og veldu að heimila. Eftir að þessi stilling hefur verið virkjuð fyrir námskeiðið mun bætast við valkostur í uppsetningu verkefna þar sem mögulegt er að nota stýrða einkunnagjöf.
Myndin fyrir neðan sýnir valmöguleika í uppsetningu verkefnis eftir að stýrð einkunnagjöf hefur verið virkjuð.

Sjá nánar: How do I add a moderated assignment to be graded by multiple reviewers?
9. Nafnlaus einkunnagjöf
Tvær leiðir eru mögulegar til að kennari/kennarar sjái ekki nöfn nemenda við einkunnagjöf.
Nafnleysi virkjað í uppsetningu verkefnis
Þessi leið gefur kost á að velja í uppsetningu verkefnis hvort einkunnagjöf á að vera nafnlaus. Nöfn nemenda munu þá ekki birtast í SpeedGrader.
Byrja þarf á að heimila nafnlausa einkunnagjöf í stillingum námskeiðsins.
- Smelltu á Stillingar neðst í leiðarstýringu námskeiðsins.
- Smelltu á Valkostir þáttar, flipi ofarlega á skjánum.

- Þar sem stendur Nafnlaus einkunnagjöf skaltu smella á rauða krossinn og velja að heimila. Eftir að þessi stilling hefur verið virkjuð fyrir námskeiðið mun bætast við valkostur í uppsetningu verkefna þar sem hægt er að merkja við nafnleysi.

- Opnaðu verkefnið sem á að hafa nafnlausa einkunnagjöf og smelltu á Breyta.
- Skrunaðu niður, merktu við Matsaðilar geta ekki séð nöfn nemenda og vistaðu.

Nafnleysi virkjað í SpeedGrader
Þessi leið tengist notanda/einstökum kennara. Nöfn nemenda sjást ekki í SpeedGrader í neinum verkefnum kennarans á meðan stillingin er virk. Ef fleiri kennarar eru í námskeiði þarf hver og einn að velja stillinguna fyrir sig.
- Opnaðu verkefnið og farðu í SpeedGrader.
- Smelltu á tannhjólið í efra vinstra horni og á Valkosti.

- Merktu við Fela nöfn nemenda í SpeedGrader og vistaðu stillingarnar.

10. Nafnlausar athugasemdir kennara
Þessi valkostur gerir mögulegt að velja í uppsetningu verkefnis hvort athugasemdir í skjöl nemenda skuli vera nafnlausar. Valkosturinn þarf að vera heimilaður í stillingum námskeiðs, undir valkostum þátta, til að hann komi fram í uppsetningu verkefnis.
ATH. Eingöngu athugasemdir sem settar eru í skjal nemanda inn í SpeedGrader verða nafnlausar. Almennar athugasemdir sem settar eru í panel hægra megin í SpeedGrader eru ávallt undir nafni.
- Smelltu á Stillingar neðst í leiðarstýringu námskeiðsins.
- Veldu flipann Valkosti þátta, ofarlega á skjánum.
- Finndu Nafnlaus einkunnagjöf, smelltu á rauða krossinn og veldu að heimila. Eftir að þessi stilling hefur verið virkjuð mun valkosturinn koma fram í uppsetningu verkefna.
11. Tímastillingar *
Í tímaglugganum neðst á síðunni kemur fram bæði hverjir eiga að skila verkefninu og tímastillingar. Sjálfvalið er að allir nemendur námskeiðs skuli skila.
Hægt er að bæta við fleiri tímagluggum fyrir nemendur sem eiga að fá lengri skilafrest eða skila á öðrum tíma. Það er gert með því að smella á + Bæta við neðst í tímaglugganum.
Skilafrestur — Formlegur skiladagur verkefnis. Þessi tími kemur fram í námskeiðsdagatali (svo framarlega sem verkefnið er birt nemendum).
Tiltækt frá — Tíminn skilgreinir hvenær nemendur geta byrjað að skila verkefninu, einnig hvenær þau fá aðgang að verkefnislýsingu og fylgigögnum, ef einhver eru.
Þar til — Tíminn lokar fyrir skil. Eftir þennan tíma geta nemendur ekki skilað verkefninu.

12. Gefa nemanda lengri skilafrest
Til að gefa nemanda, einum eða fleiri, lengri skilafrest þarf að bæta við öðrum tímaglugga. Athugaðu að breyta ekki tímaglugganum sem á við aðra nemendur.
- Smelltu á + Bæta við fyrir neðan tímagluggann, nýr tímagluggi bætist við fyrir neðan þann fyrri.
- Settu inn nafn nemanda (nöfn nemenda) sem á að fá lengri tíma og stilltu tímann. Hægt er að tilgreina nöfn margra nemenda í sama glugga ef allir eiga að fá sama tímafrest.
Ef nafn nemanda kemur ekki fram í listanum er nóg að slá inn fyrstu bókstafina í nafninu til að það komi fram.
Mögulegt er að bæta við eins mörgum tímagluggum og þörf krefur fyrir nemendur með ólíka skilafresti.
13. Verkefni fyrir tiltekna nemendur
Í þeim tilvikum þar sem verkefni er einungis ætlað hluta nemenda þarf að tilgreina það undir úthluta til. Verkefnið mun þá ekki birtast öðrum nemendum og einkunnabókin gerir ráð fyrir að aðrir eigi ekki að fá einkunn fyrir það.
Þetta er hægt að gera með þrennum hætti. Með:
- Með nöfnum nemenda
- Með hluta/hlutum – sjá nánar leiðbeiningar um hvernig hlutar námskeiðs eru búnir til.
- Með auðkennismerki – Sjá nánar leiðbeiningar um að búa til og setja auðkennismerki á nemendur.
Tilgreina nöfn nemenda sem eiga að skila verkefni
- Farðu neðst í uppsetningu verkefnisins, að rammanum Úthluta.
- Eyddu Allir með því að smella á krossinn
- Settu nöfn þeirra nemenda sem eiga að skila verkefninu í reitinn.
Ef nafn nemanda sést ekki er nóg að slá inn upphafsstafi, til að nafnið komi fram.

14. Vista og birta*
Eftir að smellt er á Vista og birta sjá nemendur verkefnið og skiladagur þess kemur fram í námskeiðsdagatali.
Nemendur fá þó ekki aðgang að verkefnislýsingunni (eða fylgigögnum), fyrr en kemur að Tiltækt frá dagsetningu og tíma.

Annað sem tengist
Láta verkefnið koma fram í einingu (viku) á heimasíðu
Ef námskeiðsvefurinn er skipulagður út frá einingum (vikum eða námsþáttum) er rökrétt að tengill á verkefnið komi einnig fram þar.
- Smelltu á plús tákn einingarinnar, gluggi opnast.

- Veldu Verkefni í línunni efst. Verkefni námskeiðsins birtast í glugganum fyrir neðan.

- Veldu verkefnið í verkefnalistanum og smelltu á Bæta við atriði.















