Heim > Kennarar > Umsýsla námskeiðs > Aðgengi stýrt með hlutum

Aðgengi stýrt með námskeiðshlutum

Þegar nemendum námskeiðs er skipt upp í sk. hluta getur kennari valið að úthluta námsefni eða verkefnum eingöngu til hluta nemenda. Hlutar eru settir upp í Uglu og yfirfærast í Canvas.
Dæmi þar sem hlutar geta hentað:

  • Grunn- og meistaranemum er kennt saman.
  • Námskeið býður upp á staðnám og fjarnám.
  • Nemendur geta valið úr mismunandi leiðum í námskeiði sem kalla á skil ólíkra verkefna eða aðgangs að ólíku efni.

Þegar tvö eða fleiri námskeið eru kennd saman (er gefinn einn námskeiðsvefur) eignast hvert námskeið sjálfkrafa sinn hluta.

Eingöngu nemendur þess hluta sem efni er úthlutað til hafa aðgang að efninu sjá það á námskeiðsvefnum.

Námskeiðshlutarnir koma fram í stillingum námskeiðs undir flipanum hlutar efst á skjánum, einnig undir tenglinum fólk. Liðið getur allt að því ein klukkustund frá því að hlutar eru stofnaðir í Uglu þar til þeir birtast í Canvas.

Hlutar virka ekki á sama hátt og hópar í námskeiði. Forðast skal að rugla því saman.

Hlutar henta sérstaklega í fjölmennum námskeiðum og geta sparað kennara tíma.

Best hentar að nota hluta ef skipting nemenda er stöðug og óbreytanleg út námskeiðið. Ef tilteknir nemendur eiga að skila öðru verkefni en aðrir í eitt skipti hentar að úthluta verkefninu til ákveðinna nemenda eða að merkja nemendur undir fólk og úthluta verkefni til nemenda með tiltekið merki. Sjá nánar um merki í þátttakendum námskeiðs.

Hlutar stofnaðir í Uglu

  1. Á forsíðu Uglu í námskeiðsreit, er farið í þrípunktinn aftan við námskeið og í verkfæri.
    ugla-námskeið-verkfæri
  2. Hægra megin undir aðgerðum kennara er smellt á námskeiðshlutar í Canvas.
    námskeiðshlutar-í-canvas1
  3. Námskeiðshluta er gefið heiti og smellt á vista. Nemendalistinn opnast þar sem merkt er við þá nemendur sem eiga að tilheyra hlutanum.

    heiti hluta

Breyta skráningu í hluta

Ef þarf að breyta skráningu nemenda í hluta er smellt á breyta. Hlutarnir koma þá fram sem dálkar framan við nöfn nemenda þar sem merkt er við, sbr. skjáskot fyrir neðan.

hlutar settir upp í námskeiði

Eyða hluta

Til að eyða hluta er smellt á yfirlit hluta og á ruslatunnuna aftan við hlutann.

Efni í Canvas úthlutað til hluta nemenda

Aðgangi að verkefni eða öðru efni námskeiðs er stjórnað í uppsetningu atriðis (í breyta). Skrolla þarf niður í uppsetningarforminu að úthluta til. Þar þarf að fjarlægja allir og velja í staðin þann hluta sem á að hafa aðgang að efninu.

úthluta-til-fjarnema
Á myndinni er verið að úthluta verkefni til nemenda sem tilheyra hlutanum fjarnemum. Eingöngu þeir nemendur munu sjá og geta skilað verkefninu.