Heim > Kennarar > Umsýsla námskeiðs > Nemendahópar

Hópar í námskeiði

Nokkrar algengar ástæður þess að skipta nemendum í hópa:

  • Hópverkefni: Nemendur skila verkefninu inn sem hópur.
  • Hópumræða: Nemendur geta einungis tekið þátt í og séð umræðu eigin hóps.
  • Hópvinna: Nemendur geta notað heimasvæði hópsins til að ræða saman, funda og safna gögnum.
  • Leyfa nemendum að skrá sig í hópa og tilkynna með því val sitt á einhverjum möguleikum.

Hópar eru ávallt stofnaðir inn í hópasetti. Hægt er að setja upp mörg hópasett í námskeiði s.s. vegna hópverkefna eða umræðna. Nemendur sjá ekki hópasettið, einungis hópana.

Með því að tengja hópasett við verkefni eða umræðu verður til hópverkefni eða hópumræða.

Sjá nánar um eiginleika neðar.

ATH: Nemandasýn sýnir ekki hópa á fullnægjandi hátt. Sjá hvernig nemendur sjá hópa í myndbandi neðar á síðunni, hópar út frá nemandanum.

Gefðu hópum heiti sem endurspegla námskeið og tilgang (t.d. „HMM223F – Viðskiptagreining – Hópur-1“).

Ef hópar eru tengdir við verkefni: Settu alla nemendur í hóp—líka þá sem mega skila einir (einn og einn í hóp). Ef sjálfsskráning er virk, staðfestu að allir séu í réttum hópum og gerðu hana óvirka áður en skil hefjast; mundu að skil teljast fyrir allan hópinn og einkunn/endurgjöf birtist öllum (með möguleika á einstaklingsbundinni einkunn).

 
 

Hópasett og skráning í hópa

Hópar í námskeiði eru stofnaðir undir Fólk í valmynd námskeiðs. Byrjað er á að stofna hópasett sem heldur utan um hópaskiptinguna. Kennari getur valið um:

  • að setja nemendur handvirkt í hópana
  • að láta Canvas skrá nemendur af handahófi
  • að virkja sjálfsskráningu og leyfa nemendum að skrá sig í hópana.

Hópana er hægt að stofna um leið og hópasettið eða eftir á. Nemandi getur eingöngu verið í einum hópi í hverju hópasetti.

Oft eru sett upp mörg hópasett í námskeiðum þar sem áhersla er lögð á hópvinnu.
Dæmi

  • Hópasett 1 með fimm manna hópum, vegna hópumræðu.
  • Hópasett 2 með pörum, vegna paraverkefnis.
  • Hópasett 3 með misstórum hópum, vegna hópvinnu.

Hópar eru stundum notaðir til að leyfa nemendum að velja úr ákveðnum möguleikum með því að skrá sig í hóp.

Heiti hópa

Láttu heiti hópa endurspegla tilgang þeirra og hvaða námskeiði þeir tilheyra. 
Dæmi: „HMM223F – Viðskiptagreining – Hópur-1“

Þegar hópar eru stofnaðir um leið og hópasett ræðst heiti þeirra af heiti hópasettsins að viðbættu númeri aftan við. Í ofangreindu dæmi var hópasettinu gefið heitið HMM223F – Viðskiptagreining – Hópur- og Canvas bætir númeri aftan við heiti hvers hóps. Eftir að hóparnir hafa verið stofnaðir má breyta heiti hópasettsins ef þurfa þykir t.d. taka út orðið hópur.

Einnig er hægt að stofna hópasett án hópa en stofna hópana handvirkt, einn og einn eftir á. Með því móti er einfalt að gefa hverjum hóp sértækt heiti.

Vinnusvæði hópa

Hver hópur eignast sjálfkrafa eigið vinnusvæði. Þar geta hópmeðlimir safnað gögnum í skráarsafn hóps, sett upp síður og umræður, sent tilkynningar á hópmeðlimi og skráð viðburði í dagatal hóps. Kennari hefur aðgang að hópvinnusvæðum og getur m.a. fylgst með vinnu nemenda. Athugið að verkefnaskil fara ekki fram í gegnum vinnusvæði hóps og það tengist ekki einkunnabók.

Um hópverkefni

Til að stofna hópverkefni þarf að setja upp verkefni og tengja við hópasett. Það sama á við varðandi hópumræðu, sjá nánar um uppsetningu umræðu.

  • Settu alla nemendur í hóp, einnig þá sem mega skila einir og sér (einn og einn í hóp).
  • Ef nemendur mega skrá sig sjálf í hópa, athugaðu að allir séu skráðir í rétta hópa og gerðu sjálfsskráningu óvirka áður en skil eiga að hefjast (sjá nánar um vandamál tengd hópum.)
  • Skil nemanda í hópverkefni teljast sem skil hóps og koma fram hjá öðrum hópmeðlimum.
  • Skil, einkunn og endurgjöf nemanda miðast við þann hóp sem hann var skráður í þegar skil fóru fram.
  • Einkunn og endurgjöf birtist öllum í hópmeðlimum, en mögulegt er að gefa nemanda aðra einkunn en hópfélögum.
  • Í hópumræðum sjá nemendur eingöngu umræðu eigin hóps.

Hvernig sjá nemendur hópa?

ATH! Nemandasýn/að skoða námskeið sem nemandi virkar ekki þegar kemur að hópum. Sjá nánar í myndbandinu fyrir neðan.

 Nemendur sjá hópa á annan hátt en kennarar. 

  1. Nemandi getur farið sömu leið og kennari, opnað námskeið, farið í Fólk og í Hópa. Þar sér nemandi alla hópa námskeiðsins, óháð því hvort hann er meðlimur í hópnum eða ekki. Nemandinn getur þó einungis heimsótt hópvinnusvæði hóps þar sem hann er meðlimur. Til að skrá sig í hóp er nauðsynleg hjá nemanda að fara þessa leið.
  2. Nemandi getur einnig farið í Hópa í Canvas valmyndinni (í bláa borðanum til vinstri). Þar fær nemandinn upp alla sína hópa, í öllum námskeiðum, á einum stað og þaðan getur nemandinn heimsótt vinnusvæði einstakra hópa. Með tilliti til þessa er mikilvægt að hópar beri lýsandi heiti.