Vandamál tengd hópum og ráð til að fyrirbyggja
Það er nokkuð algengt að kennarar lendi í vanda með hópverkefni í Canvas. Sérstaklega þegar kemur að því að gefa endurgjöf og einkunnir. Þá kemur í ljós að einhverjir nemendur voru ekki skráðir í hóp þegar skilin fóru fram eða voru skráðir í rangan hóp en fleiri vandamál koma líka upp.
Vandamál
Hóparnir sjást ekki í SpeedGrader
Ef heiti hópa koma ekki fram í SpeedGrader er orsökin oftast eitt eða fleira af neðangreindu.
Verkefni sem á að virka sem hópverkefni er nauðsynlegt að tengja við hópasett. Það er gert í uppsetningu verkefnisins.
- Smelltu á verkefnið og á breyta.
- Skrollaðu niður að stillingu fyrir hópverkefni, merktu við þetta er hópverkefni.
- Veldu rétta hópasettið valið fyrir neðan
Áríðandi er að allir nemendur séu settir í hópa í hópverkefni, einnig þeir sem mega skila einir ef einhverjir eru. Þeir eru þá settir einir í hóp, hver og einn.
Ef nemendur eru byrjaðir að skila verkefninu er því miður ekki hægt að tengja það við hópasett. Þá þarf annað hvort að gefa hverjum nemanda fyrir sig einkunn og endurgjöf út frá því hvaða hóp hann tilheyrir eða búa til nýtt verkefni, tengja það við hópasettið, athuga að allir nemendur séu komnir í hópa og biðja nemendur um að skila aftur.
Ef hópar eru tómir eiga nemendur annað hvort eftir að skrá sig í þá (sjálfsskráning) eða kennari á eftir að setja nemendur í hópana. Í þessu tilviki sjást hópar ekki í SpeedGrader, enda ekki rökrétt að hægt sé að gefa „hópi“ án nemenda einkunn og endurgjöf.
Lausnin felst í að setja nemendur í hópana eða búa til hópa og setja nemendur í þá ef hópana vantar. Athugaðu að ef sjálfsskráning nemenda er leyfð þurfa hóparnir (tómir hópar) að vera til staðar. Nemendur geta ekki skráð sig í hópasettið sjálft eða búið sjálfir til hópa í hópasetti sem kennarinn stofnaði.
Áríðandi er að allir nemendur séu settir í hópa í hópverkefni, einnig þeir sem mega skila einir ef einhverjir eru. Þeir eru þá settir einir í hóp, hver og einn. Sjá nánar myndbandið Hvernig virka hópar í námskeiði.
Ef nemendur eru byrjaðir að skila verkefninu er því miður ekki hægt að laga þetta. Þá þarf annað hvort að gefa hverjum nemanda fyrir sig einkunn og endurgjöf eða búa til nýtt verkefni, tengja það við hópasettið, sjá til þess að hópasettið sé í fullkomnu lagi og biðja nemendur um að skila aftur.
Ef hópverkefni er stillt á að gefa hverjum nemanda einkunn sérstaklega sjást hópar ekki í SpeedGrader. Til að breyta þessu og fá fram heiti hópa í stað nafna nemenda þarf að breyta stillingunni í uppsetningu verkefnisins.
- Smelltu á verkefnið og farðu í breyta.
- Skrollaðu niður að stillingu fyrir hópverkefni, taktu merki úr við skrá einkunnir á hvern nemanda sérstaklega.
- Vistaðu.
Stillingunni er hægt að breyta eftir þörfum. Oftast er byrjað á að gefa hópum einkunn og ef gefa þarf einstökum hópmeðlimum aðra einkunn en hópfélögum er stillingunni breytt til að skrá einkunn á tiltekna nemendur.
Nemandi fékk ekki endurgjöfina sem aðrir í hópnum fengu
Þegar nemandi í hóp skilar hópverkefni lítur Canvas svo á að verkefnisskilin tilheyri öllum þeim sem eru í hópnum á þeim tíma sem skilin fara fram.
Ef nemandi skiptir um hóp eftir að hópurinn hefur skilað verkefni fylgir verkefnið nemandanum í nýja hópinn (nýju hópfélagarnir sjá þó ekki skilin). Þetta þýðir einnig að ef kennari setur endurgjöf í skjalið sem skilað var í fyrra hóp nemanda mun nemandinn sjá endurgjöfina.
Ef nýi hópur nemendans var búin að skila áður en nemandinn gerðist meðlimur mun nemandinn ekki sjá skil nýju hópfélaganna eða endurgjöf sem kennari setur í það skjal. Nemandinn mun þó fá einkunn nýja hópsins og almenna endurgjöf svo framarlega sem það er gefið eftir að nemandinn gerðist meðlimur.
Til að nemandi sjái skil nýja hópsins og þá endurgjöf sem kennari setur e.t.v. í skjalið sem hópmeðlimir skiluðu, þarf hópurinn að skila aftur eftir að nemandinn gerist meðlimur. Nemandinn hefur áfram aðgang að skilum síns fyrra hóps og endurgjöf ef hún er sett inn í skjal.
Ráðlagt er að passa upp á að allir nemendur séu skráðir og sáttir í sínum hópi áður en skil hefjast og ef sjálfsskráning í hópa var leyfð, að slökkva á sjálfsskráningu áður en skil hefjast.
Ef nemandi hafði ekki skráð sig í hóp þegar hópurinn skilaði mun hún ekki sjá endurgjöf kennara. Nemandi hefur ekki aðgang að skilum hópsins þar sem þau fóru fram áður en hún gerðist meðlimur og mun því ekki heldur sjá endurgjöf sem kennari setur í skjal hópsins.
Ráðlagt er að passa upp á að allir nemendur séu skráðir og sáttir í sínum hópi áður en skil hefjast og ef sjálfsskráning í hópa var leyfð, að slökkva á henni áður en skil hefjast.
Nemandi sem fékk að skila einn sér ekki endurgjöfina
Í hópverkefni ættu allir nemendur að vera í hópi. Ef nemanda er leyft að skila hópverkefni einn er betra að setja nemandann einan í hóp. (athugið að nemendur sjá alla hópa námskeiðs einnig þá sem þeir eiga ekki aðild að).
Hvað gerist ef nemandi sem er ekki í hóp skilar hópverkefni?
Nemandinn mun ekki geta skoðað endurgjöf kennarans, þ.e. almenna endurgjöf sem er gefin til hliðar við skjal nemandans í SpeedGrader. Nemandinn hefur þó aðgang að einkunn og endurgjöf sem sett er inn í skjal.
Ráðlagt er að passa upp á að allir nemendur séu skráðir og sáttir í sínum hópi áður en skil hefjast og ef sjálfsskráning í hópa var leyfð, að slökkva á henni áður en skil hefjast.
Ráð til að fyrirbyggja vandamál
Ef eftirfarandi ráðum er fylgt ættu einkunnir og endurgjöf hópverkefnis að koma rétt fram hjá öllum nemendum.
- Passaðu að rétta hópasettið sé valið í uppsetningu hópverkefnisins.
- Gakktu úr skugga um að allir nemendur séu komnir í hóp áður en skil hópverkefnis eiga að hefjast.
- Ef sumir nemendur mega skila einir, án hóps, settu þá hvern og einn þeirra í sér hóp (s.s. einn nemandi í hverjum hópi).
- Ef þú leyfðir nemendum sjálfum að skrá sig í hópa, skaltu slökkva á sjálfsskráningunni áður en skil eiga að hefjast. Sjá sjálfskráning í hópa gerð óvirk undir áríðandi grunnatriðum.
- Ekki breyta eða eyða hópasettinu eða hópum settsins eftir að skil hefjast, eða síðar.
Þetta þýðir að ekki má breyta heiti hópasetts eða flytja nemendur á milli hópa og á einnig við eftir að allir hafa skilað hópverkefninu og búið er að gefa endurgjöf og einkunnir. Hópasettið má þó nota óbreytt í öðru hópverkefni eða hópumræðu.
Hægt er að búa til eins mörg hópasett og þörf krefur í námskeiði.
