Að gefa skoðunaraðgang
Skoðunaraðgangur í námskeiði veitir notanda heimild til að skoða birt efni námskeiðs, umræður og tilkynningar en notandinn getur ekki tekið þátt í námskeiðinu líkt og nemandi, t.d. ekki svarað innleggjum í umræður eða skilað verkefni. Þessi aðgangur hefur oft verið kallaður „fluga á vegg“.
Skoðunaraðgangur gefinn
Skoðunaraðgangur að námskeiðsvef í Canvas er gefinn í Uglu. Svona er farið að:
- Opnaðu Uglu (ugla.hi.is).
- Farðu í verkfæri undir valmynd (þrípunkt) við námskeiðið, á forsíðu Uglu.

- Smelltu á allar aðgerðir hægra megin undir aðgerðum kennara.

- Smelltu á bæta við „skoðanda“ á námskeiðið, í reitnum fyrir aðgerðir vegna Canvas.

- Finndu notandann annað hvort með því að slá inn notandanafn (án @) eða kennitölu.

- Smelltu á vista.
Allt að ein klukkustund getur liðið þar til notandinn fær skoðunaraðgang í Canvas.
Sannreynt hvort skoðandi hefur fengið aðgang
Opnaðu námskeiðið í Canvas. Undir fólk í valmynd námskeiðs er hægt að fylgjast með hvort notandi hefur fengið skoðunaraðgang. Hér getuðu t.d. slegið nafni skoðandans upp í leitinni eða athugað listann undir öll hlutverk. Þar kemur fram tala í sviga aftan við hlutverkið skoðandi. Veldu hlutverkið skoðandi og nafn viðkomandi kemur fram ef og þegar hann hefur fengið aðgang.
Aftan við nafn skoðanda, undir hlutverki kemur fram „fylgist með: enginn“. Þetta er eðlilegt og merkir að skoðandinn sé ekki tengdur við neinn tiltekinn nemanda heldur hafi almenna skoðunarheimild í námskeiði.

Í Canvas er mögulegt að tengja tiltekinn nemanda við skoðanda (e. observer). Í því tilviki getur skoðandi t.d. fylgst með einkunnum nemandans. Möguleikinn á við þegar um unga nemendur er að ræða og foreldrum er veittur skoðunaraðgangur. Sá möguleiki er ekki notaður við HÍ.




