Heim > Stjórnsýsla > Um þrjár uppsetningar Canvas

Þrjár uppsetningar Canvas

Þrjár Canvas útgáfur eða uppsetningar tilheyra Háskóla Íslands:


Beta og test útgáfurnar eru uppfærðar reglulega út frá lifandi útgáfu. Breytingar sem eru gerðar t.d. á námskeiðsvef í Beta og test yfirskrifast því og verða reglulega eins og í lifandi útgáfunni, sjá nánar: What are the release schedules for beta, production, and test environments?

Uppitími Beta og test er lægri en í lifandi útgáfu og þær því ekki alltaf aðgengilegar. Viðbætur í Canvas eru ekki aðgengilegar.

Lifandi útgáfa

Þetta er sú Canvas-útgáfa almennt er unnið í, sem nemendur og kennarar nota.
Slóðin er: https://haskoliislands.instructure.com/

Prófunarútgáfa

Í prófunarútgáfunni er hægt að prófa hluti án þess að hafa áhrif á lifandi námskeið. Athugið að nýja prófakerfið er ekki aðgengilegt eða aðrar viðbætur í Canvas.

Prófunarútgáfan er uppfærð mánaðarlega m.v. lifandi útgáfu. Stundum er mögulegt að endurheimta námskeiðsgögn í prófunarútgáfunni sem var eytt fyrir mistök í lifandi útgáfu. Einfaldara er að endurheimta atriði í lifandi útgáfu sé það mögulegt, sjá nánar að endurheimta efni sem var eytt.

Beta útgáfa

Canvas Beta útgáfan er aðallega notuð til að forskoða nýjungar í Canvas sem ekki eru enn komnar í lifandi útgáfu.

Þar sem Beta er uppfærð vikulega út frá lifandi útgáfunni er oft einnig hægt að skoða eldri útgáfur námskeiðsvefja þar og t.d. ná í gögn sem var óvart eytt á námskeiðsvef lifandi útgáfu. Athugið þó að lifandi útgáfan býður upp á ýmsar leiðir til að endurheimta atriði og að það er einfaldara en að ná í gögn í Beta og test, sjá nánar að endurheimta efni sem var eytt.