Canvas æfingasvæði
Átt þú æfingasvæði í Canvas?
Kennurum og starfsfólki er heimilt að sækja um æfingasvæði í Canvas.
Æfingasvæði er venjulegur námskeiðsvefur með nánast öllum þeim möguleikum sem hann býður upp á, en er án nemenda. Með því að bregða sér í hlutverk prófunarnemanda námskeiðs (skoða sem nemandi), er hægt að skila verkefnum eða taka próf og kanna hvernig hlutirnir virka út frá nemanda. Skilum prófunarnemanda er hægt að gefa einkunn og endurgjöf til að kynna sér hvernig það virkar. Sjá nánar um nemandasýn og prófunarnemanda í leiðbeiningum kennara.
Æfingasvæði gefur kost á að setja upp hluti og prófa virkni verkfæra án þess að þurfa spá í áhrif þess á nemendur. Ekki er hægt að vinna með hópa á æfingasvæðinu þar sem það er að öllu jöfnu án nemenda. Æfingasvæðið er aðgengilegt á Canvas skjáborði notandans en ekki í Uglu.
Óska eftir æfingasvæði
Til að fá æfingasvæði í Canvas er best að senda póst á hjalp@hi.is með „Canvas æfingasvæði“ í línunni fyrir málefni.
