Canvas sérvefir
Sérvefir eru ætlaðir til að halda utan um sérverkefni ýmis konar eða samvinnu á vegum kennara og starfsfólks.
Sérvefur býður upp á öll tól hefðbundins námskeiðsvefs án þess að vera tengdur við námskeiðsnúmer. Hann er stofnaður í Uglu. Um leið þarf að tilgreina eiganda vefsins, nemendur og kennara. Eigandi sérvefs getur bætt við og fjarlægt notendur (sjá nánar neðar).
Hjá þátttakendum koma sérvefir fram á skjáborðinu í Canvas en ekki í Uglu.
Sótt um sérvef
Til að sækja um sérvef þarf að senda beiðni á hjalp@hi.is. Í póstinum þarf að tilgreina neðangreindar upplýsingar.
- Hvað vefurinn á að heita
(sérvefir eru auðkenndir í Canvas með „Sér:“ fyrir framan heiti). - Netfang þess sem á að vera eigandi vefsins (mega vera fleiri en einn). Eigandi sérvefs hefur aðgang til að bæta við eða fjarlægja nemendur og kennara á vefnum.
- Netföng kennara og nemenda.
Gott er að setja „Canvas sérvefur“ í línuna fyrir málefni.
Canvas sérvefur stofnaður í Uglu
Ekki er ljóst þegar þetta er skrifað hvort margir hafa aðgangsheimildir í Uglu til að stofna Canvas sérvefi, en ef starfsmaður hefur heimild er farið svona að:
Leiðin: Kerfi og verkfæri > Canvas > sérvefir.
- Farðu í kerfi og verkfæri í valmynd Uglu.

- Veldu Canvas undir námsleiðir og námskeið og því næst sérvefir.

- Fylltu út formið samkvæmt leiðbeiningum á síðunni.
Ef vefurinn á ekki að vera bundinn við tiltekið misseri/önn skaltu velja „default term“.
Sláðu inn kennitölu eða notandanafn (án @) í línuna fyrir eiganda, og þá ætti nafnið að koma upp.
Nauðsynlegt er að skrá a.m.k. einn nemanda til að geta stofnað vefinn. Ef engar upplýsingar liggja fyrir um nemendur er hægt að skrá einn kennarann einnig sem nemanda.

- Vistaðu.
Vefurinn kemur oftast fram í Canvas samstundis, en ein klukkustund getur þó liðið þar til hann verður aðgengilegur þar. Vefurinn kemur ekki fram í Uglu hjá notendum.
Notendur sérvefs uppfærðir
Nemendum og kennurum sérvefs er bætt við eða fjarlægðir í Uglu. Farin er sama leið og við stofnun sérvefs.
Leiðin: Kerfi og verkfæri > Canvas > mínir sérvefir (eða sérvefir).
- Farðu í kerfi og verkfæri í valmynd Uglu.
- Veldu Canvas undir námsleiðir og námskeið.
- Þú ert eigandi sérvefsins:
Smelltu á mínir sérvefir og opnaðu vefinn, gerðu þær breytingar sem þarf og vistaðu.Eigandi sérvefsins er annar:
- Smelltu á sérvefir og allir sérvefir.

- Finndu sérvefinn, t.d. með Ctrl+F og smelltu til opna vefinn.
Athugaðu að það er hægt að stilla neðst og láta alla sérvefina birtast á sömu síðunni sem auðveldar leit. - Gerðu þær breytingar sem þarf og vistaðu.
Ef þú sérð fram á að þurfa framvegis að uppfæra notendur á vefnum getur verið þægilegra að bæta sér við sem eiganda vefsins.
- Smelltu á sérvefir og allir sérvefir.




