Heim > Stjórnsýsla > Að bregðast við sem annar notandi

Að bregðast við sem annar notandi

Í þjónustu við notendur er oft óljóst í hverju vandamál notanda felst. Að geta brugðið sér í hlutverk viðkomandi notanda kemur sér þess vegna vel þegar finna á lausnina á vandamálinu.

Skoða sem tiltekinn notandi

Til að bregða sér í hlutverk notanda eru aðallega notaðar tvær leiðir:

Leiðin: Stjórn > fólk

Hægt er að fletta viðkomandi notanda upp í Canvas og smella á bregðast við sem táknið, aftan við nafn.

að bregðast við sem annar

Leiðin: Námskeiðsvefur > fólk

Með því að opna námskeið og fara í fólk í valmynd námskeiðsins, smella á nafn nemanda, á hlekkinn bregðast við sem notandi í panel hægra megin og á halda áfram.

Þegar smellt er á nafn kennara þarf að smella á upplýsingar notandareiknings hægra megin og svo á bregðast við sem notandi.

Hætta að bregðast við sem

Til að hætta að bregðast við sem notandi þarf að smella á hætta að virka sem notandi (ekki nóg að fara til baka).
hætta að virka sem notandi

„Bregðast við sem“ þýðir í raun að skrá sig inn sem viðkomandi notandi án lykilorðs. Starfsmaðurinn getur framkvæmt aðgerðir líkt og hann sé viðkomandi notandi og frá sjónarhóli annarra notenda lítur út eins og sá notandi hafi framkvæmt viðkomandi aðgerðir. Notkunarskrár kerfisins sýna þó skýrt að það var starfsmaðurinn sem framkvæmdi aðgerðirnar fyrir hönd notandans.