Heim > Kennarar > Grunnur námskeiðsvefs > Kennsluáætlun > Sniðmát fyrir kennsluáætlun

Sniðmát fyrir kennsluáætlun

Innihald sniðmátsins

Sniðmátinu er skipt upp í eftirfarandi kafla auk forsíðu: Um námskeiðið, hæfniviðmið, kennarar, námsefni, verkefni og próf, tímaáætlun, námsmat og einkunnir, stefna og reglur námskeiðs, samskipti og bjargir. Í hverjum kafla eru upplýsingar fyrir kennara með rauðum texta og í einhverjum tilvikum efni fyrir nemendur sem kennari getur látið standa óbreytt s.s. í köflunum um samskipti og bjargir sem nemendur geta nýtt sér.  Hér er hægt að skoða sniðmátið á Canvas námskeiðsvef.

1. Sniðmátið sótt í opið efni í Canvas

Byrja þarf á að ná í sniðmátið og flytja það inn í námskeið. Sniðmátið breytir ekki námskeiðinu þar sem það er í formi síðu sem einfaldlega vistast í síðusafni námskeiðs.

  1. Farðu í opið efni í Canvas valmyndinni (bláa borðanum).
    opið efni
  2. Skráðu kennsluáætlun á einni síðu í leitina efst á síðunni. Sniðmátið birtist ásamt tengli fyrir neðan.
  3. Smelltu á tengilinn á sniðmátið Kennsluáætlun | Á einni síðu.
  4. Smelltu í Import/Download hnappinn hægra megin. Merktu við námskeiðið og smelltu á Import into Course.
    Sniðmátið vistast sem síða í síðusafni námskeiðsins.

2. Sniðmátið sett upp í námskeiði

Til að setja upp sniðmátið þarf að afrita HTML kóða sniðmátssíðunnar og líma inn í kennsluáætlun.

  1. Farðu í Síður í valmynd námskeiðsins og smelltu á Stofndagur efst, til að fá nýjustu síður efst.
  2. Opnaðu sniðmátssíðuna kennsluáætlun á einni síðu og farðu í Breyta.
    Það getur verið praktískt að vinna efni kennsluáætlunar í sniðmátssíðuna. Ástæðan er sú að síður í Canvas gefa kost á því að bakka um útgáfu. t.d. í útgáfu síðunnar sem vistuð var fyrir 30 mínútum eða í gær. Ekki er mögulegt að bakka í fyrri útgáfu þegar efnið er unnið beint í kennsluáætlunarsvæðið.

    Ef kennari vill breyta tenglum í efnisyfirliti er ráðlagt að skrifa nýja textann inn í tengilinn sjálfan og eyða síðan varlega bókstöfunum til beggja hliða en ekki nota möguleikann „valkosti tengils“, þá mun tengillinn brotna. 

  3. Til að flytja efni sniðmátssíðunnar inn í kennsluáætlun þarf að fara í HTML umhverfi ritilsins, afrita allan kóðann og líma hann inn í HTML umhverfi ritilsins í kennsluáætlun. 
    Sjá nánar í myndbandinu fyrir neðan.

Einnig getur verið gott að kynna sér opið efni í Canvas (e. Commons).