Heim > Kennarar > Grunnur námskeiðsvefs > Kennsluáætlun

Kennsluáætlun í Canvas

Markmið

Kennsluáætlun er leiðarvísir sem skýrir fyrir nemendum hvað þau eiga að læra, hvernig kennslu og námsmati verður háttað og hvers er vænst af þeim í námskeiðinu. Hún styður einnig kennara við að skipuleggja námskeiðið á skýran og samræmdan hátt þannig að hæfniviðmið, kennsluaðferðir og námsmat séu samhæfð. Vel unnin kennsluáætlun eykur gagnsæi, dregur úr óvissu og leggur grunn að markvissu og árangursríku námi. 

Það er líka mikilvægt að  nemendur finni kennsluáætlun ávallt á sama stað í öllum sínum námskeiðum, í valmynd námskeiðs.

Eiginleikar

Farið er í breyta efst á síðu kennsluáætlunar til að setja efni inn í kennsluáætlun. Hér getur kennari notfært sér möguleika ritilsins, s.s. að búa til tengla í efni námskeiðs, setja inn myndband eða taka upp kynningu. Sjá nánar vídeóið um ritilinn.

Á síðu kennsluáætlunar birtast sjálfkrafa:

  • Listi yfir verkefni í tímaröð eftir skiladegi.
  • Upplýsingar um vægi verkefnaflokka.
  • Námskeiðsdagatal.
Mælt með

Settu efni kennsluáætlunar í ritilinn í stað þess að deila skjali. Ávinningur þess er margþættur.

  • Efnið verður aðgengilegra og texti endurraðast út frá skjástærð notanda. Vegna fatlaðra nemenda eða annarra sem nota talgervla til að lesa vef er þetta sérstaklega áríðandi en er í raun notendavænna fyrir alla. Vitað er að nemendur nota mikið snjallsíma til að skoða Canvas.
  • Það er mun fljótlegra og einfaldara fyrir kennarann að uppfæra efnið t.d. ef laga þarf innsláttarvillu eða ranga dagsetningu í kennsluáætlun. Einungis þarf að breyta og vista í Canvas í stað þess að finna skjalið, opna í viðeigandi forriti (t.d. Word), breyta, vista, hlaða skjalinu aftur upp í Canvas og jafnvel að búa aftur til tengil í það á einum stað eða fleiri.

Kynntu þér hvaða efni er æskilegt að hafa í kennsluáætlun.

Kennsluáætlun er skipt upp í þrjá meginhluta


síðan fyrir kennsluáætlun í Canvas

  1. Innihald kennsluáætlunar – Á þessu svæði birtist efni sem kennarinn setur inn. Hér er hægt að nýta sér alla möguleika ritilsins, s.s. að búa til tengla í verkefni, skrár og annað efni námskeiðs, birta myndband eða taka upp skilaboð til nemenda.
  2. Yfirlit námskeiðs – Hér birtist sjálfkrafa listi yfir verkefni, umræður og próf sem gilda til einkunnar í námskeiðinu, í tímaröð eftir skiladegi.
  3. Dagatal og vægi – Hægra megin birtist dagatal námskeiðs og vægi einstakra matsþátta í lokaeinkunn námskeiðs. Sjá nánar leiðbeiningar um Vægi verkefna og fjölda punkta.

Tengt efni