Mótun stefnu um notkun gervigreindar í námskeiði
Í kafla kennsluáætlunar um ráðvendni í námi er ráðlegt að skýra vel hvaða notkun gervigreindar er leyfð, takmörkuð eða óheimil í námskeiðinu og í einstökum verkefnum. Stefnan ætti að vera sniðin að viðkomandi námskeiði og hjálpa nemendum að skilja hvenær heimilt er að nota gervigreind, í hvaða tilgangi og hvernig á að gera grein fyrir slíkri notkun.
Á vef kennslusviðs (setberg.hi.is) eru kaflar um gervigreind fyrir kennara:
Creating your course policy on AI á vef Stanford Teaching Commons er sjálfstætt námsefni sem leiðir kennara skref fyrir skref í gegnum mótun stefnu í notkun gervigreindar í eigin námskeiði. Efnið inniheldur ígrundunarspurningar, dæmi um orðalag og vinnublað sem nýtist við gerð stefnunnar.
Syllabi Policies for AI Generative Tools er safn dæma um ákvæði í notkun gervigreindar í kennsluáætlunum frá ýmsum háskólum og fræðigreinum. Hægt er að skoða dæmin í töflureikni og raða þeim eftir námskeiðum, fræðigreinum og stofnunum. Skjalið var tekið saman af Dr. Lance Eaton.
