ECTS einingar og fjöldi vinnustunda
Útreikningur á vinnustundum nemanda
Að baki hverri ECTS einingu á að liggja 25-30 klst. vinna nemanda. Inn í þeim tímafjölda er allt meðtalið, s.s. heimavinna, tímasókn, áhorf/hlustun á myndbönd, þátttaka í fjarfundum, samskipti, verkefni og próf.
Með því að fylla út í töfluna áætlaðan fjölda klukkustunda gefurðu nemanda hugmynd um hversu mikil vinna felst í námskeiðinu. Hægt er að notfæra sér reiknivélar á netinu til að áætla vinnuálag t.d. reiknivél Wake Forest University, Office of Online Education sem er notuð hjá mörgum háskólum.
Taflan fylgir inn í sniðmáti fyrir kennsluáætlun.
| fj. klst. | Vinna í námskeiði |
|---|---|
| Heimavinna/lestur | |
| Tímasókn | |
| Fjarfundir | |
| Upptökur | |
| Hópvinna | |
| Samskipti | |
| Verkefni | |
| Próf | |
| Alls: |
