Heim > Kennarar > Grunnur námskeiðsvefs > Kennsluáætlun > Gátlisti fyrir kennsluáætlun

Gátlisti fyrir kennsluáætlun

Hér er hægt að hlaða niður gátlista til leggja mat á kennsluáætlun. Gátlistinn er tekinn saman af Guðrúnu Geirsdóttur og Elvu Björgu Einarsdóttur.

Hlaða niður gátlista fyrir kennsluáætlun (docx).

Atriði til yfirferðar Í góðu lagi Á ekki við Athugasemdir
Upplýsingar um kennara
Eru fleiri kennarar sem koma að námskeiði en umsjónakennari? Er að finna upplýsingar um þá?   
Nafn kennara og hvernig og hvar nemendur geta leitað til hans (símanúmer, netfang, viðtalstímar). Hvatning til að leita aðstoðar?   
Upplýsingar um námskeið
Hvar í námsleið (grunnnám, meistaranám, tengist námskeiðið öðrum námskeiðum)   
Forkröfur til nemenda (faglegar, aðrar)   
Gilda reglur um viðveru og mætingu nemenda? Eru þær skýrar (og sanngjarnar)? Hafa nemendur eitthvað um þær að segja?   
Kennslustefna kennara
Hver er námssýn kennara? Hvaða væntingar gerir kennari til nemenda?   
Eru einhverjar reglur sem kennari vill leggja áherslu á?   
Lýsing á námskeiði
Hvernig er námskeiðið kynnt fyrir nemendum? Hver eru meginmarkmið með kennslu þessa námskeiðs? Tengsl við önnur námskeið.   
Hæfniviðmið
5-7 hæfniviðmið   
Skýr og skiljanleg?   
Hægt að meta eða sjá hvort að nemendur hafa náð þeim?   
Koma inn á fleiri en eitt þrep Bloom?   
Námsmat
Er námsmat tengt hæfniviðmiðum?   
Eru verkefni líkleg til að aðstoða nemendur við að ná tilsettri hæfni?   
Er líklegt að verkefni vekji áhuga nemenda á viðfangsefninu?   
Eiga nemendur val um viðfangsefni/verkefni/ námsmat?   
Eru viðmið um námsmat skýr (þ.e. eru matskvarðar eða slíkar upplýsingar aðgengilegar nemendum?   
Er námsmat byggt á sjálfs- eða jafningjamati eða er kennari sá eini sem metur frammistöðu nemenda?   
Eru reglur um skiladaga skýrar? Vita nemendur hvernig þeir eiga að bera sig að geti þeir ekki skilað á tilsettum tíma?   
Hefur kennari sett sér reglur um endurgjöf (tímasetningu, form og fyrirkomulag)?   
Inntak/námsefni námskeiðs
Virðist námsefni endurspegla það sem talið er mikilvægast innan fræðigreinar?   
Fá nemendur leiðbeiningar um námsefni (aðalefni, ítarefni)?   
Geta nemendur haft áhrif á val námsefnis eða hvaða efni er tekið fyrir í námskeiði?   
Er vísað til annarra bjarga sem stutt gætu við nám nemenda (heimsíður, MOOC námskeið, efni um námsvenjur)?   
Tímaáætlun
Er tímaáætlun námskeiðs skýr? Geta nemendur auðveldlega séð hvert verður umfjöllunarefni hvers tíma/viku og hvert er þeirra hlutverk þar?   
Geta nemendur haft áhrif á tímaáætlun?   
Er tímaáætlun og verkefnaskil skipulögð með tilliti til skila nemenda í öðrum námskeiðum?   
Vinnuálag
Hefur vinnuálag námskeiðs verið metið? Eru slíkar upplýsingar aðgengilegar fyrir nemendur?   
Jafnrétti
Tekur kennsluáætlun mið af fjölbreyttum nemendahópi?   
Er kynjum gert jafnt undir höfði t.d. í lesefni (ef þess er kostur)?   
Samskipti
Er fjallað á einhvern hátt um samskipti í námskeiði?   
Stuðningur við nemendur
Er nemendum vísað á stoðþjónustu af einhverju tagi?   
Er talað til nemenda með sértæk úrræði?   
Um ráðvendni í námi
Er eitthvað að finna um ráðvendi í námi og viðurlög við ritstuldi?   
Eru nemendur upplýstir um rétta og siðferðilega notkun gervigreindartóla í verkefnavinnu?   
Eru veittar leiðbeiningar um hvenær er leyfilegt að nota gervigreind og hvernig skal vísa til hennar eða upplýsa um notkun hennar (ef við á)?   
Annað sem ykkur finnst skipta máli?

Taflan er aðeins til skoðunar. Reitirnir eru ekki útfyllanlegir á vefnum.