Yfirlýsing um samskipti
Hér fylgir tillaga að klausu um samskipti sem hægt er að hafa í kennsluáætlun námskeiðs. Textinn kemur úr gátlista um jafnrétti í kennslu og er einnig að finna í tilbúnu sniðmáti fyrir kennsluáætlun.
Samskipti í nemendahópum
Mikilvægt er að koma fram við annað fólk af virðingu og vinsemd eins og kemur fram í siðareglum Háskóla Íslands. Skapa má rými fyrir skoðanaskipti, rökræður og ágreining án þess að samskipti verði niðurlægjandi eða ógnandi. Við Háskóla Íslands er mismunun og kynbundin og kynferðisleg áreitni ekki liðin eins og kemur fram í jafnréttisáætlun Háskóla Íslands. Að niðurlægja, gera grín að, ógna eða ráðast á fólk vegna kyns, kynhneigðar, fötlunar, kynvitundar, uppruna, litarháttar, trúarbragða o.s.frv. er ekki liðið. Slíkt gildir um öll samskipti, bæði bein og rafræn.
Vörumst að styðja við staðalmyndir og setja fólk í fyrir fram ákveðin hólf út frá hópum sem það er talið tilheyra. Spyrjum okkur hvort við myndum koma eins fram ef manneskjan væri ófötluð, af öðru kyni, hefði aðra kynhneigð, ætti sér annan uppruna o.s.frv. Ef við erum óviss um viðbrögð við ákveðnum ummælum getur verið betra að sleppa þeim. Sýnum hvort öðru skilning og virðingu og vinnum saman að því að skapa góða umræðuhefð.
