Heim > Stjórnsýsla > Að endurheimta efni sem var eytt

Að endurheimta efni sem var eytt

Það getur alltaf eitthvað farið úrskeiðis og mannleg mistök eiga sér stað. Við tiltekt í námskeiði kemur fyrir að röngu verkefni er óvart eytt, að einkunnir séu óvart yfirskrifaðar o.m.fl. Þó kerfið sjálft sé öruggt eru möguleikar á mistökum margir. Það kemur sér vel að Canvas býður upp á nokkrar leiðir til að endurheimta efni en það fer þó eftir atvikum hvort það er mögulegt.

Verkefni, umræða eða síða endurheimt

Ef verkefni, umræðu eða síðu var eytt er einfaldast að nota „undelete“ leiðina til að endurheimta. Sjá nánar í leiðbeiningunum kennara að endurheimta efni sem var eytt. Verkefnaskil nemenda og innlegg í umræður fylgja yfirleitt með þegar endurheimt er með þeirri leið.

Eldri útgáfa síðu endurheimt

Þegar unnið er með síður í námskeiði er mögulegt að endurheimta fyrri útgáfu síðu, þ.e. eftir að breytingar voru vistaðar. Undir valmöguleikum síðu er farið í skoða sögu síðu þar sem hægt er að rekja sig til baka, skoða fyrri útgáfur síðunnar og velja tiltekna útgáfu til að endurheimta. Sjá nánar í hlutanum bakkað í fyrri útgáfu síðu í leiðbeiningum kennara.

Ef ekki var búið að vista breytingarnar er hægt að nota „undo“ og „redo“ aðgerðirnar í ritlinum eða samsvarandi flýtileiðir Ctrl+Z og Ctrl+Y.

Eldri útgáfa námskeiðsvefs

Oftast er mögulegt að skoða eldri útgáfu námskeiðsvefs í tveimur prófunarútgáfum Canvas, jafnvel flytja út námskeið þaðan og flytja inn einstök atriði þess í lifandi útgáfu námskeiðs. Í annarri hvorri útgáfunni gæti verið mögulegt að finna, glatað efni t.d. einkunnir sem búið var að gefa en hafði fyrir mistök verið eytt. Nokkur atriði geta þó spilað inn í mögulega endurheimt s.s. hvenær atriði var eytt og hvort prófunarútgáfur hafi í millitíðinni verið uppfærðar. Sjá nánari upplýsingar um þrjár uppsetningar Canvas.

Að endurheimta námskeið sem var eytt

Í þessu tilviki er átt við að endurheimta námskeið sem var eytt í heilu lagi í Canvas.  Aðgerðin er framkvæmd í lifandi útgáfu Canvas.

Sannreyna skal fyrst hvort námskeiðið er örugglega ekki lengur til í Canvas. Þetta má gera með því að:

  1. Nota námskeiðsleitina í Canvas.
  2. Fletta námskeiðinu upp í Uglu og smella á Canvas hlekk þess.

Sé námskeiðið sannarlega ekki lengur til í Canvas er farið svona að við að endurheimta.

  1. Finna Canvas ID námskeiðsins. ID námskeiðs er númer sem kemur fram í addressulínu vafrans þegar námskeið er heimsótt. Eftir að námskeiði hefur verið eytt eru nokkrar leiðir til að finna ID-ið.
    ID námskeiðs
    Þegar námskeið er opnað í Canvas kemur ID-númer námskeiðsins fram í addressulínu vafrans (ekki er átt við hefðbundið námskeiðsnúmer).

    Leiðir til að finna Canvas ID námskeiðs:

    • Á forsíðu kennarans í Uglu er Canvas hlekkur á virk námskeið. Kennarinn getur afritað slóðina námskeiðið sem var eytt og sent þeim sem á að endurheimta námskeiðið.
    • Með því að slá upp nafni kennara undir fólk í Canvas, smella á nafnið til að fá upplýsingasíðu kennarans og skrolla niður að síðuskoðunum er hægt að skoða hvaða síður í Canvas kennarinn hefur verið að heimsækja. Allar líkur eru á því að þar komi fram slóð námskeiðsins sem var eytt, þar sem ID-ið er að finna.
    • Finna námskeiðið í námskeiðasýsli Uglu, smella á námskeiðið og svo á Canvas hnapp námskeiðsins. ID-ið ætti þá að koma fram í addressulínu vafrans (þó svo að námskeiðssíðan sjálf birtist ekki).
    • Mögulegt er að keyra skýrslu í Canvas yfir námskeið sem hefur nýlega verið eytt. Leiðin er stjórn → Háskóli Íslands (eða fræðassvið/deild) → stillingar → skýrslur. Stillingar hægra megin við eru notaðar til að velja núverandi misseri. Hægt er að hlaða skýrslunni niður sem .CSV skrá sem er síðan flutt inn í Excel. Þessi leið er nefnd hér síðast þar sem hún virkar ekki alltaf.  
  2. Til að endurheimta námskeiðið er farið í stjórn → verkfæri stjórnanda → endurheimta efni
    Undir „veldu tegund til að endurheimta“ er valið „námskeið“.
    ID númer námskeiðsins er slegið inn í reitinn fyrir neðan og smellt á finna.
    Námskeiðið ætti þá að birtast fyrir neðan. Þar er smellt á endurheimta.

endurheimta námskeið

Sjá nánari upplýsingar um að endurheimta námskeið á Canvas Community.