Þrjár uppsetningar Canvas
Þrjár Canvas útgáfur eða uppsetningar tilheyra Háskóla Íslands:
- Lifandi útgáfa: https://haskoliislands.instructure.com/ (sú sem við erum að nota).
- Prófunarútgáfa: https://haskoliislands.test.instructure.com/
- Beta útgáfa: https://haskoliislands.beta.instructure.com/
Beta og test útgáfurnar eru uppfærðar reglulega út frá lifandi útgáfu. Breytingar sem eru gerðar t.d. á námskeiðsvef í Beta og test yfirskrifast því og verða reglulega eins og í lifandi útgáfunni, sjá nánar: What are the release schedules for beta, production, and test environments?
Uppitími Beta og test er lægri en í lifandi útgáfu og þær því ekki alltaf aðgengilegar. Viðbætur í Canvas eru ekki aðgengilegar.
Lifandi útgáfa
Þetta er sú Canvas-útgáfa almennt er unnið í, sem nemendur og kennarar nota.
Slóðin er: https://haskoliislands.instructure.com/
Prófunarútgáfa
Í prófunarútgáfunni er hægt að prófa hluti án þess að hafa áhrif á lifandi námskeið. Athugið að nýja prófakerfið er ekki aðgengilegt eða aðrar viðbætur í Canvas.
Prófunarútgáfan er uppfærð mánaðarlega m.v. lifandi útgáfu. Stundum er mögulegt að endurheimta námskeiðsgögn í prófunarútgáfunni sem var eytt fyrir mistök í lifandi útgáfu. Einfaldara er að endurheimta atriði í lifandi útgáfu sé það mögulegt, sjá nánar að endurheimta efni sem var eytt.
Beta útgáfa
Canvas Beta útgáfan er aðallega notuð til að forskoða nýjungar í Canvas sem ekki eru enn komnar í lifandi útgáfu.
Þar sem Beta er uppfærð vikulega út frá lifandi útgáfunni er oft einnig hægt að skoða eldri útgáfur námskeiðsvefja þar og t.d. ná í gögn sem var óvart eytt á námskeiðsvef lifandi útgáfu. Athugið þó að lifandi útgáfan býður upp á ýmsar leiðir til að endurheimta atriði og að það er einfaldara en að ná í gögn í Beta og test, sjá nánar að endurheimta efni sem var eytt.
