Heim > Stjórnsýsla > Tímabili námskeiðs breytt

Tímabili námskeiðs breytt

Virkni námskeiðsvefs miðast við misserið sem hann tilheyrir. Fyrir fyrsta dag misseris og eftir þann síðasta er vefurinn óvirkur (sjá tímabil missera neðar). Eftir að misseri lýkur geta nemendur og kennarar skoðað námskeiðsvefinn, en ekki er hægt að senda tilkynningar, skrá einkunnir, skila verkefni eða gera annað eins og á virkum námskeiðsvef.

Ýmsar aðstæður geta kallað á að námskeið þurfi að hefja fyrir upphafsdag misseris eða að framlengja þurfi námskeið og hafa það virkt fram yfir misserið.

Námskeið látið hefjast fyrr eða framlengt

Til að framlengja námskeið eða láta það hefjast áður en misseri hefst, þarf breyta dagsetningum þátttöku í stillingum námskeiðs.

  1. Farðu í stillingar námskeiðsins. Flipinn námskeiðsupplýsingar opnast.
  2. Skrollaðu niður að þátttöku og veldu þar námskeið í stað annar.
  3. Skráðu upphafs- og lokadagsetningu námskeiðsins.
    1. Framlengja námskeið: Veldu lok námskeiðs í samráði við kennara og skráðu byrjun sem upphaf misseris .
    2. Láta námskeið hefjast fyrr: Veldu upphafsdag í samráði við kennara og lok námskeiðs í samræmi við lok misseris.
  4. Smelltu á uppfæra námskeiðsupplýsingar til að vista.


Mikilvægt
er að stilla lokadag námskeiðs (ekki skilja reitinn eftir auðan) að öðrum kosti verður námskeiðið áfram virkt og hangir t.d. á skjáborði nemenda og kennara endalaust.

Þátttaka nemenda

Þátttaka nemenda í námskeiði miðast við þátttökudagsetningar sem stilltar eru í stillingum námskeiðs.

Nemendur fá t.a.m. ekki tilkynningar í tölvupósti ef þær eru sendar fyrir upphaf námskeiðs, þrátt fyrir að búið sé að birta námskeiðið. 

Tímabil missera

Tímabil misseris (annir) er skilgreint Í Canvas og námskeiðsvefur tilheyrir tilteknu misseri. Eftir að misseri námskeiðs er lokið verða námskeiðsvefir þess einungis aðgengilegir til að skoða.

  • Haustmisseri 1. ágúst – 31. janúar.
  • Vormisseri 1. desemter – 15. júní.
  • Sumarmisseri 1. maí – 25. september.
  • Heilsárs 1. ágúst – 31. maí.