Sameining námskeiða
Þegar námskeið eru samkennd hentar oft að þau fái einn og sama námskeiðsvef í Canvas. Til að svo megi verða eru námskeið sameinuð í Uglu. Hægt er að sameina tvö eða fleiri námskeið.
Við sameiningu námskeiða þarf að velja það námskeið sem á að vera ráðandi. Nemendur sameinaðra námskeiða fá allir aðgang að námskeiðsvef ráðandi námskeiðs. Kennari hefur oft ákveðna skoðun á því hvaða námskeið skuli vera ráðandi. Ef ekki hentar best m.t.t. lokaeinkunna (sjá neðar) að láta fjölmennara námskeiðið vera ráðandi.
Sameiningin kemur fram í Canvas innan klukkustundar.
Námskeið sameinuð
Leiðin: Ugla > Kerfi og verkfæri > Námsleiðir og námskeið: Canvas > Sameiningar vefja
- Farðu í kerfi og verkfæri í Uglu.
- Smelltu á Canvas í reitnum námsleiðir og námskeið.
- Smelltu á sameiningar vefja.
- Sláðu fyrst inn námskeiðsnúmer ráðandi námskeiðs í línuna. Námskeiðið ætti þá að birtast fyrir neðan. Smelltu á námskeiðið og það dettur inn í línuna.
Ef námskeiðið birtist ekki skaltu setja ártal fyrst eitt bil og svo námskeiðsnúmerið (ártalið þar sem kennsluárið hefst sem sagt árið 2025 fyrir kennsluár 2025-2026 eða 2026 fyrir kennsluár 2026-2027).
Áríðandi er að velja rétt námskeið á réttu misseri.
Bættu víkjandi námskeiðinu (eða námskeiðum) aftan við.
Athugaðu að námskeiðin séu á sama misseri.
- Smelltu á sameina námskeið.
Ef mistök eiga sér stað við sameiningu námskeiða er mikilvægt að eyða sameiningunni sem fyrst, innan klukkustundar.
Hvernig kemur sameiningin fram í Canvas?
Eftir að námskeið eru sameinuð eru nemendur hvers námskeiðs settir í sk. hluta á námskeiðsvefnum. Það gerir kennara t.d. kleift að úthluta efni og verkefnum eingöngu til nemenda eins hluta /eins námskeiðs.
Til að kanna hvort sameining námskeiðanna hefur raungerst í Canvas er hægt skoða hvort víkjandi námskeið hefur eignast hluta í því ráðandi.
- Flettu upp ráðandi námskeiði í námskeiðsleitinni og opnaðu það.
- Farðu í stillingar neðst í valmyndinni.
- Skoðaðu undir flipann hluta efst á síðunni. Eftir sameiningu kemur þar fram námskeiðsnúmer víkjandi námskeiðs ásamt fjölda nemenda. Eðlilegt er að ráðandi námskeiðs sé sýnt með tvo hluta. Annar hlutinn tilheyrir upprunalega námskeiðsvefnum og hinn verður til við sameininguna.
Hlutar námskeiðanna koma einnig fram í nafnalista námskeiðsins undir fólk.
Uppfæra heiti námskeiðsvefs fyrir sameinuð námskeið í Canvas
Til að það sé skýrt hjá nemendum víkjandi námskeiðs (námskeiða) að námskeiðsvefur ráðandi námskeiðs tilheyri nú einnig þeim er rétt að uppfæra heiti námskeiðsins og númer í Canvas og láta bæði/öll námskeiðsnúmer koma þar fram, í stillingum námskeiðsvefsins.

Skráning lokaeinkunna fyrir víkjandi námskeið
Þegar kemur að flutningi lokaeinkunna úr Canvas í Uglu þarf að handskrá lokaeinkunnir víkjandi námskeiðs í Uglu. Það er gert á hefðbundinn hátt: Kennari finnur námskeiðið undir Uglan mín > námskeiðin mín og smellir á táknið fyrir að skrá lokaeinkunnir sjá nánar flutningur lokaeinkunna í Uglu í leiðbeiningum kennara.
Aðgerðin sækja úr Canvas í Uglu (til að sækja lokaeinkunnir í Canvas) virkar eingöngu fyrir nemendur ráðandi námskeiðs.


