Byrjaðu vel í Canvas
Þessi síða er góður byrjunarstaður fyrir þig sem ert að stíga þín fyrstu skref í Canvas sem kennari. Hér finnur þú það helsta til að koma námskeiðinu þínu af stað. Leiðbeiningar um einstök atriði er að finna undir kennarar í valmyndinni efst. Mundu eftir leitinni á vefnum, hún getur flýtt fyrir.
Canvas er námsumsjónarkerfi Háskóla Íslands. Kerfið er þróað af fyrirtækinu Instructure og býður upp á fjölbreytt verkfæri sem styðja við nám, kennslu, samskipti, verkefnaskil, námsmat og endurgjöf.
Í Canvas Háskóla Íslands eru einnig nokkrar viðbætur, þ.á.m. FeedbackFruits, sem býður upp á verkfæri fyrir jafningjamat, hópavinnu, gagnvirk verkefni, teymisnám og fleira sem ætlað er að styðja við gagnrýna hugsun og aukna virkni nemenda.
Nýr námskeiðsvefur er stofnaður í Canvas fyrir námskeið á hverju skólaári eða í hvert skipti sem námskeið er kennt. Eldri námskeiðsvefir eru áfram aðgengilegir nemendum og kennurum í Canvas.
Eftir að námskeiði lýkur verður námskeiðsvefurinn óvirkur. Það þýðir að notendur geta skoðað efnið, en geta ekki tekið þátt í námskeiðinu eða gert breytingar með sama hætti og á meðan kennsla stendur yfir.
Skráning nemenda og kennara í námskeið fer fram í Uglu. Notendur flytjast þaðan yfir í Canvas. Aðgengi að námskeiðsvefjum í Canvas byggist því á upplýsingum sem koma úr Uglu.
Nemendur fá aðgang að námskeiðsvef í Canvas eftir að kennari hefur birt vefinn.
Áður en nemendur geta séð námskeiðsvef í Canvas þarf kennari að birta hann. Einnig þarf að ganga úr skugga um að viðeigandi einingar/vikur (e. modules), síður, verkefni og annað efni námskeiðsins sé birt.
Með því að nota skoða sem nemandi getur kennari skoðað og prófað hvernig námskeiðsvefurinn og einstök atriði hans birtast nemendum.
Hæfniviðmiðin
Hæfniviðmiðin eru hornsteinn hvers námskeiðs. Á þeim byggist námsmatið og kennslan.
Hjálp með hæfniviðmiðin – gervigreindarspjall sem getur hjálpað við að móta, yfirfara og tengja hæfniviðmið við námsmat.
Um hæfniviðmið og gervigreindarspjallið.
Grunnþjálfun í Canvas
Grunnþjálfun í Canvas er sjálfsnám fyrir kennara sem eru að byrja að nota Canvas. Í námskeiðinu er farið yfir helstu grunnatriði, með stuttum myndböndum og æfingum sem kennarar vinna í eigin æfingasvæði í Canvas. Það tekur um 2 klst. að fara í gegnum námskeiðið.
Mikilvægt í upphafi námskeiðs
Þarftu aðstoð?
Hafðu samband ef þú hefur spurningar eða þarft aðstoð. Sjá nánar hjálp og ráðgjöf vegna Canvas.
