Heim > Kennarar > Námsefnið > Skráarsafn námskeiðs

Skrár námskeiðs

Tengillinn skrár í valmynd námskeiðs leiðir í skráarsafn námskeiðs. Í skrársafninu er hægt að hlaða upp, geyma, flokka í möppur og stýra aðgengi að skrám. Skrár sem hlaðið er upp t.d. í ritlinn eða í einingu, vistast sjálfkrafa í skráarsafninu. Stærð skráarsafnsins er 4.2 GB.

Sjálfvalin stilling námskeiðsvefs er að nemendur hafa ekki beinan aðgang að skráarsafni. Nemendur fá aðgang að skrám í gegnum tengla sem kennari býr til í viðeigandi einingum/vikum eða á síðum námskeiðs.

Ráð: Til að halda skráarsafninu skipulögðu er gott að hlaða skrám fyrst þangað inn og flokka þær í möppur áður en þeim er deilt með nemendum. Skrár sem hlaðið er upp beint í einingar eða í ritilinn vistast í rót skráarsafnsins, sem getur fljótt orðið ruglingslegt.

ATHUGIÐ! Upptökur á ekki að vista í skráarsafni námskeiðs. Þær á annað hvort hafa í Panopto eða í Canvas Studio.