Canvas-moli / Canvas Tip

Frágangur einkunna og flutningur námskeiðsgagna

Hjálparbeiðnir frá kennurum eru fjölbreyttar og alla vega enda verið að nota mörg tól og aðferðir í ólíkum námskeiðum. Á þessum árstíma fjölgar tvenns lags beiðnum. Annars vegar einkunnatengdum beiðnum vegna námskeiða sem eru á lokametrunum og hins vegar beiðnum sem tengjast afritun á námskeiðsgögnum vegna námskeiða komandi vormisseris. Hér fylgja upplýsingar og hlekkir sem geta komið sér vel.

Frágangur einkunna og skráning lokaeinkunna

1. Vægi verkefna og fjöldi punkta

Til að lokaeinkunn reiknist rétt þarf að athuga ýmislegt m.a. þarf að:

  • vera samræmi á milli punktafjölda verkefna og einkunnagjafar. Þegar gefnar eru einkunnir á skalanum 0-10 þarf punktafjöldi verkefnis að vera tíu.
  • setja upp verkefnaflokka, virkja og skrá vægi.

Leiðbeiningar: Vægi verkefna og fjöldi punkta


2. Frágangur einkunnabókar og skráning lokaeinkunna í Uglu

Réttur frágangur einkunnabókar tryggir að einkunnir nemenda reiknist rétt og að mögulegt sé að flytja lokaeinkunnir úr Canvas í Uglu. Frágangurinn felst m.a. í að:

  • allar einkunnir þurfa að vera birtar nemendum.
  • í öllum einkunnareitum skal vera einkunn0 eða undanþegið (þ.e. vegna verkefna sem hafa vægi í lokaeinkunn). Eina undantekningin er frá þessu er þegar verkefni er úthlutað sérstaklega til útvalinna nemenda, þá verða einkunnareitir annarra sjálfkrafa óvirkir og tómir. Einkunnabókin gerir þá ráð fyrir í útreikningum að aðrir en útvaldir séu undanþegnir því að skila verkefninu.

Leiðbeiningar: Frágangur einkunnabókar og skráning lokaeinkunna í Uglu

Gátlisti vegna frágangs einkunnabókar


 

 

Námskeiðsgögn flutt á milli námskeiða

Canvas býður upp á tvær mismunandi leiðir til að afrita/flytja gögn á milli námskeiða.

1. Efni flutt inn í nýtt námskeið

Aðgerðin Flytja inn núverandi efni sem er hægra megin á heimasíðu námskeiðs býður upp á að afrita og flytja inn allt efni frá öðru námskeiði í einu lagi (þ.m.t. tilkynningar) eða velja tiltekið efni til flutnings. Þessa aðgerð þarf að framkvæma á námskeiðinu sem á að fá gögnin (nýja námskeiðinu).

Flutningur efnis getur tekið allt frá örfáum mínútum til einhverra klukkustunda, eftir álagi í Canvas. Ef aðgerðin er endurtekin flyst efnið á nýjan leik og kemur að lokum tvöfalt inn í námskeiðið. Hægt er að fylgjast með framvindu flutningsins á sama stað (sbr. skjáskot).

fylgst með framvindu á flutningi efnis á milli námskeiða

Leiðbeiningar: Flutningur námsgagna á milli námskeiða

2. Stök atriði flutt frá eldra námskeiði yfir á nýtt

Aðgerðin Afrita yfir á hentar vel þegar einungis þarf að flytja fá stök atriði, s.s. verkefni, skjal, einingu eða síðu. Þessa aðgerð er að finna í valmöguleikum/þrípunkti aftan við hvert atriði á námskeiðinu. Atriðið afritast og sendist yfir á valið námskeið. Eðli málsins samkvæmt þarf að framkvæma aðgerðina á því námskeiði þar sem gögnin er að finna.

Aðstoð

Til að fá aðstoð eða ráðgjöf vegna Canvas er best að senda skilaboð á hjalp@hi.is. Einnig er hægt að bóka tíma með kennsluráðgjafa