Heim > Kennarar > Umsýsla námskeiðs > Mætingarskráning > Stillingar og vægi mætingar

Stillingar og vægi mætingar

Um útreikning einkunnar

Einkunn fyrir mætingu er sýnd sem hlutfall mætingar á hverjum tíma.
Dæmi: Nemandi sem hefur mætt í þrjú fyrstu skiptin sem námskeið er kennt er á þeim tíma með 100% mætingu.

Til að mætingareinkunn reiknist þarf einnig að merkja við þegar nemandi er fjarverandi eða seinn. Ef eingöngu er merkt við þau skipti sem nemandi mætir en sleppt að merkja við hin fær nemandi 100% mætingareinkunn. Þetta orsakast af því að útreikningur einkunnarinnar tekur eingöngu til þeirra skipta þar sem einhver merking var valin mætt/ur, fjarverandi eða sein/n.

„Roll Call“ verkefnið

Eftir að mæting hefur verið skráð í fyrsta skiptið stofnast sjálfkrafa verkefnið „Roll Call Attendance“ ásamt tilheyrandi dálki í einkunnabók. Skráning mætingar tengist þessu verkefni.

Áríðandi: Til að koma í veg fyrir villur í útreikningi mætingareinkunnar:

  • Ekki breyta heiti verkefnisins.
  • Ekki fela verkefnið.
  • Ekki eyða verkefninu.

Þessar aðgerðir rjúfa tengingu mætingarskráningar við mætingarverkefnið.

Breyta punktafjölda verkefnisins

Verkefnið fær sjálfkrafa 100 punkta og flestum tilvikum er mælt með að breyta ekki punktafjölda. Ef verkefnið hefur ekki vægi í lokaeinkunn og einungis stendur til að breyta fjölda punkta sem gefinn er fyrir mætingu, er hægt að breyta punktafjöldanum, að því gefnu að: (1) punktafjölda verði ekki breytt aftur og (2) breytingin sé gerð eftir fyrstu skráningu mætingar og hún síðan endurtekin eftir breytinguna.

  1. Opnaðu verkefnið.
  2. Smelltu á Breyta stillingum verkefnis í efra hægra horni.

    breyta stillingum verkefnis

  3. Skráðu nýjan punktafjölda.

    fjöldi punkta

  4. Vistaðu neðst á síðunni.

Athugið: Mætingarverkefnið verður ekki til fyrr en eftir að mæting hefur verið skráð í fyrsta skiptið, fyrir að minnsta kosti einn nemanda.

Mætingarskráningu þarf að endurtaka eftir að punktafjölda er breytt

Eftir að punktafjölda verkefnisins hefur verið breytt þarf að endurtaka mætingarskráningu til að leiðrétta mætingareinkunn.

  1. Farðu í Attendance í valmynd námskeiðsins.
  2. Smelltu á hnappinn Unmark all og skráðu mætingu allra nemenda eins og venjulega. Prósentugildið mun þá aðlagast rétt bæði í SpeedGrader og einkunnabókinni. Ef breytingin var gerð strax eftir fyrstu mætingarskráningu þarf aðeins að endurtaka mætingarskráningu í þetta eina skipti.

Mæting á ekki að hafa vægi í lokaeinkunn

Ef mætingareinkunn á ekki að reiknast inn í lokaeinkunn þarf að merkja við það í stillingum „Roll Call“.

  1. Smelltu á Attendance í valmynd námskeiðsins.
  2. Smelltu á tannhjólið í efra hægra horni og veldu Roll Call Settings.

    Roll call settings

  3. Merktu við Do not count attendance toward final grade.
    Þessi stilling yfirfærist í mætingarverkefnið og hægt að sannreyna það með því að skoða uppsetninu þess. Þó er mælt með að þetta sé stillt inn í „Roll Call Settings“ í stað þess að stilla í uppsetningu verkefnis eins og venjulega er gert.

    Do not count attendance toward final grade

Nemendur geta fylgst með eigin mætingu og fá einkunn en einkunnin reiknast ekki inn í lokaeinkunn.

Fjarlægja „Roll Call“ verkefnið úr einkunnabók

Mögulegt er að fjarlægja mætingarverkefnið úr einkunnabókinni. Nemendur sjá áfram verkefnið en geta ekki fylgst með eigin mætingu eða mætingareinkunn.
Athugið: Þessi breyting er óafturkræf. Ekki er mögulegt að breyta verkefninu aftur þannig að það gefi einkunn. Vertu alveg viss áður en þú breytir!

  1. Opnaðu verkefnið.
  2. Smelltu á Breyta stillingum verkefnis í efra hægra horni.
  3. Skrollaðu niður að Sýna einkunn sem og veldu Ekki metið.
  4. Vistaðu neðst á síðunni.