Canvas-moli / Canvas Tip

Hefðbundnu námsefni umbreytt í gagnvirka og lifandi námsupplifun

Í þessum fyrsta Canvas-mola ársins langar okkur í Canvas-teyminu að minna á þrjú tól í Canvas sem gera kennurum kleift að umbreyta hefðbundnu tölvutæku námsefni í áhrifaríka og lifandi námsupplifun.

Þetta eru tólin gagnvirkt skjal, gagnvirkt myndband og gagnvirk hljóðskrá sem öll eru hluti af FeedbackFruits verkfærasafninu. Þau gera kennara kleift að bæta spurningum og umræðuþráðum inn í námsefni, svo sem inn í fyrirlestur, kennslumyndband eða lesefni og auka með því virkni og þátttöku nemenda.

Tólin bjóða upp á sveigjanleika í uppsetningu og ýmsa möguleika. Kennari getur t.d. valið um hvort nemendur verði að svara spurningu til að geta haldið áfram að horfa á myndband eða lesa grein eða hvort það er valkvætt. Hægt er að láta innlegg nemenda vera nafnlaus (undir dulnefni) og láta FeedbackFruits reikna einkunnir út frá mismunandi forsendum. Ennfremur er mögulegt að leyfa nemendum að búa til spurningar og umræðuþræði inn í námsefnið og efla með því samvinnu og virkara nám.

Í Canvas leiðbeiningum kennara er að finna stutt kynningarmyndbönd á íslensku fyrir hvert tól ásamt tenglum í nákvæmar leiðbeiningar FeedbackFruits (á ensku) fyrir kennara og nemendur.

Eins og eflaust einhverjir hafa tekið eftir hafa Canvas-leiðbeiningar kennara hlotið smávegis yfirhalningu með nýrri heimasíðu og undirsíðum sem flokka efnið. Þetta er gert til að auðvelda notendum að finna það sem leitað er að. Leiðbeiningarnar er einnig hægt að skoða með óbreyttu eða lítt breyttu sniði undir námsefnistenglinum vinstra megin í valmyndinni.